Á upplýsingafundi almannavarna í dag voru
kynntar tilslakanir varðandi heimsóknir á hjúkrunarheimili.
Samkvæmt útgefnum leiðbeiningum þarf hvert heimili
að aðlaga fjölda heimsókna að sínum aðstæðum.
Heimsóknir verða leyfðar inn á hjúkrunarheimili frá
4. maí 2020 samkvæmt nánari reglum hvers heimilis en lagt er til að aðeins nánasta
aðstandanda verði leyft að koma inn á heimilið fyrstu tvær vikurnar frá því að
tilslakanir hefjast og lengur ef svo ber undir.
Hafin er vinna við reglur um heimsóknir til íbúa á Höfða
og verða þeir kynntar þriðjudaginn 28. apríl.
Heilsa
og velferð íbúanna okkar þarf alltaf að vera í forgangi og því munum við fara varlega
í tilslakanir á heimsóknarbanni og verða þær með miklum takmörkunum.
Á upplýsingafundi ríkisstjórnarinnar 14. apríl s.l. nefndi forsætisráðherra í máli sínu að tilslakanir á heimsóknarbanni hjúkrunarheimila væru í undirbúningi og á daglegum fundi Almannavarna í vikunni nefndi Landlæknir að þessar tillögur yrðu kynntar í næstu viku.
Vinnuhópur á vegum Almannavarna, Embættis landlæknis, heilbrigðisráðuneytis og hjúkrunarheimila hefur fundað reglulega síðustu vikur og er hópurinn nú að vinna tillögur að þessum tilslökunum. Þær verða gerðar í hægum skrefum en fyrstu tilslakanirnar munu væntanlega taka gildi 4. maí. Fram að 4. maí verða engar breytingar á núverandi heimsóknarbanni.
Tilslakanirnar verða kynntar síðasta vetrardag, miðvikudaginn í næstu viku (22. apríl) og þykir okkur líklegt að það muni verða mjög lítil skref í einu til að byrja með. Um leið og þessar upplýsingar liggja fyrir munum við fara að skipuleggja með hvað hætti þetta yrði hér hjá okkur.
Við gerum okkur grein fyrir að aðstandendur og íbúar eru orðnir óþreyjufullir að hittast en á sama tíma viljum við vera mjög varkár. Þar sem íbúar Höfða rétt eins og annarra hjúkrunarheimila eru flestir aldraðir og/eða með ýmsa undirliggjandi sjúkdóma eru þeir í sérstökum áhættuhóp tengt því að veikjast alvarlega af Kórónaveirunni. Það þarf því að fara afskaplega varlega í að opna heimilið fyrir utanaðkomandi gestum.
Heilsa og velferð íbúanna okkar þarf alltaf að vera í forgangi og því ef til vill vissara að byrja mjög hægt og með miklum takmörkunum.
Allmargir íbúar á Höfða hafa lýst yfir ótta og þykir öryggi sínu ógnað ef opna á heimilið. Við þurfum líka að virða óskir þeirra og sýna þeim skilning.
Að lokum viljum við þakka fyrir þolinmæði ykkar og skilning og ekki hvað sist góðar og hlýjar kveðjur.
Mörg heimili eru að fá fyrirspurnir frá ættingjum varðandi það að taka íbúa hjúkrunarheimila út af heimilinu yfir páska í matarboð eða í heimsóknir til ættingja. Almennt hafa stjórnendur heimila verið hvattir til að hafna slíkum beiðnum og er bent á upplýsingafund Almannavarna frá því á mánudaginn þar sem Anna Birna hjúkrunarforstjóri Sóltúns fór yfir stöðuna og síðustu mínúturnar á fundi Almannavarna og sóttvarnalæknis í gær. Eins og fram kom á þessum fundum erum við að nálgast hápunkt faraldursins og nauðsynlegt að allt samfélagið virði þessar takmarkanir og allir séu samtaka í því að vernda þennan áhættuhóp sem býr innan heimilisins. Á hjúkrunarheimilum býr viðkvæmasti hópurinn og ljóst að ef upp kemur sýking þá er það dauðans alvara.
Eins og Víðir tók fram á fundinum í gær þá vilja almannavarnir og sóttvarnarlæknir að heimsóknarbannið gangi í báðar áttir. Þannig að ef íbúi hjúkrunarheimilis fer sjálfur eða er tekinn af ættingjum út af hjúkrunarheimilinu, getur heimilið hafnað því að hleypa honum aftur inn. Mun þá væntanlega þurfa að skoða að útskrifa íbúann. Ef til þessa kemur mun verða farið yfir málið í samstarfshóp á vegum sóttvarnarlæknis.
Í ljósi þessara upplýsinga og þessarar grafalvarlegu stöðu í
þjóðfélaginu eru það eindregin tilmæli frá okkur að ættingjar taki ekki
aðstandanda sinn af Höfða heim til sín í heimsókn eða í bíltúr meðan á
samkomubanninu stendur. Íbúar eins og aðrir þegnar þjóðfélagsins verða að virða
2ja metra regluna og ferðast innanhúss eins og við hin og hlýða Víði. Þetta er
gert af umhyggju og til að gæta fyllstu varúðar gagnvart skjólstæðingum okkar.
Við höfum fengið nokkrar athugasemdir varðandi starfsfólk
okkar sem kemur inn á heimilið og fer heim að vakt lokinni. Það er algjörlega
ljóst að við getum ekki veitt þjónustu inn á heimilinu nema hafa starfsfólk.
Hér hefur starfsfólk tekið hlutverk sitt mjög alvarlega og dregið sig í hlé
eins og kostur er utan vinnutíma til að vernda skjólstæðinga sína hér á
heimilinu.
Við biðlum til aðstandenda að virða þessi tilmæli og bjóða
ekki íbúum Höfða heim um páskana
Þeir komu færandi hendi forsvarsmenn Lionsklúbbs Akraness í gær þegar þeir gáfu Höfða að gjöf fjórar Ipad spjaldtölvur, ásamt heyrnartólum. Það voru þau Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri og Ólína Ingibjörg Gunnarsdóttir hjúkrunarforstjóri sem veittu gjöfinni viðtöku. Að sögn Benjamíns Jósefssonar hjá Lionsklúbbi Akraness ákvað klúbburinn að bregðast skjótt við í ljósi þess að heimsóknabann er í gildi. Tækin eiga að auðvelda að íbúar á Höfða geti haft samskipti í gegnum tölvurnar við vini og venslafólk heima fyrir. Benjamín gat þess einnig að verslunin Omnis á Akranesi hafi bæði gefið klúbbnum veglegan afslátt af tækjakaupunum en auk þess gefur verslunin hulstur til að hlífa tækjunum við hnjaski.
Við á Höfða viljum færa Lionsmönnum kærar þakkir fyrir gjöfina sem mun koma sér vel fyrir íbúa heimilisins.