Framlenging á heimsóknarbanni

NEYÐARSTIG – almannavarna – COVID-19

Ágæti aðstandandi

Í ljósi stöðunnar á smitum vegna COVID-19 á Akranesi og nágrenni, höfum við stjórnendur Höfða, ákveðið að framlengja heimsóknarbanni á Höfða.

Við horfum til þess að þessi ráðstöfun vari að óbreyttu a.m.k. til og með 2. nóvember nk. 

Staðan verður endurmetin eftir þörfum og hlutaðeigandi upplýstir um leið og einhver breyting verður.  Þessi ákvörðun er sem fyrr tekin með hagsmuni íbúa á Höfða að leiðarljósi.

Eingöngu verða veittar undanþágur í tilfellum þar sem um alvarleg veikindi er að ræða eða ef einstaklingur er kominn á lífslokameðferð.

Við þökkum kærlega fyrir þann skilning og hlýhug sem íbúar og aðstandendur hafa hingað til sýnt í orði og verki.

Með vinsemd og virðingu,

Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri

Ólína Ingibjörg Gunnarsdóttir hjúkrunarforstjóri

Framlenging á heimsóknarbanni

NEYÐARSTIG – almannavarna – COVID-19

Ágæti aðstandandi

Í ljósi stöðunnar á smitum vegna COVID-19 á Akranesi og nágrenni, höfum við stjórnendur Höfða, ákveðið að framlengja heimsóknarbanni á Höfða.

Við horfum til þess að þessi ráðstöfun vari að óbreyttu a.m.k. til og með 26. október nk. 

Staðan verður endurmetin eftir þörfum og hlutaðeigandi upplýstir um leið og einhver breyting verður.  Þessi ákvörðun er sem fyrr tekin með hagsmuni íbúa á Höfða að leiðarljósi.

Eingöngu verða veittar undanþágur í tilfellum þar sem um alvarleg veikindi er að ræða eða ef einstaklingur er kominn á lífslokameðferð.

Við þökkum kærlega fyrir þann skilning og hlýhug sem íbúar og aðstandendur hafa hingað til sýnt í orði og verki.

Með vinsemd og virðingu,

Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri

Ólína Ingibjörg Gunnarsdóttir hjúkrunarforstjóri

Lokað fyrir heimsóknir á Höfða

NEYÐARSTIG – almannavarna – COVID-19

Ágæti aðstandandi

Í ljósi þess að smitum á Akranesi fjölgar hratt vegna COVID-19 ásamt aðilum í sóttkví, höfum við stjórnendur Höfða, ákveðið að loka fyrir heimsóknir inn á Höfða frá með kl. 16.00 föstudaginn 9.10.2020.

Við horfum til þess að þessi ráðstöfun vari að óbreyttu amk til og með 19. október nk. 

Staðan verður endurmetin eftir þörfum og hlutaðeigandi upplýstir um leið og einhver breyting verður.  Þessi ákvörðun er sem fyrr tekin með hagsmuni íbúa á Höfða að leiðarljósi.

Eingöngu verða veittar undanþágur í tilfellum þar sem um alvarleg veikindi er að ræða eða ef einstaklingur er kominn á lífslokameðferð.

Við þökkum kærlega fyrir þann skilning og hlýhug sem íbúar og aðstandendur hafa hingað til sýnt í orði og verki.

Með vinsemd og virðingu,

Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri

Ólína Ingibjörg Gunnarsdóttir hjúkrunarforstjóri

Nýjar heimsóknarreglur 5.10.2020

NEYÐARSTIG – almannavarna – COVID-19

Ágæti aðstandandi

Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir neyðarstigi almannavarna í samráði við sóttvarnarlækni vegna sýkinga af völdum COVID-19.

Því teljum við nauðsynlegt að bregðast við og herða heimsóknarreglur á Höfða til að vernda okkar viðkvæma hóp íbúa.

Heimild til heimsókna er einn gestur fyrir hvern íbúa, ein klukkustund í senn milli kl: 14 og 16. Sá hinn sami þarf að vera nánast í sjálfskipaðri sóttkví og passa sig sérstaklega.

  1. Allir gestir koma með sína eigin andlitsgrímu (maska). Skilyrði fyrir heimsókn.
  2. Flest smit eru að á aldrinum 18-29 ára. Við viljum biðja þann aldurshóp um að koma ekki í heimsókn. Börn undir 18 ára mega ekki koma í heimsókn.
  3. Við hvetjum heimsóknargesti til að koma aðeins 2x í viku.
  4. Undanþága er aðeins veitt við mikil veikindi íbúa og í samráði við vaktstjóra og deildarstjóra deildar.
  5. Ekki er heimilt að íbúi fari út í bíltúr eða í heimsókn með heimsóknargesti sínum.

Vinsamlega kynnið ykkur vel eftirfarandi heimsóknarreglur:

  1. Ekki panta heimsóknartíma og alls ekki koma í heimsókn ef:
    • Þú ert í sóttkví
    • Þú ert í einangrun eða að bíða eftir niðurstöðu úr sýnatöku
    • Þú hefur verið í einangrun og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift.
    • Þú ert með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl.).
  2. Heimsóknartími er frá klukkan 14 til 16 alla virka daga. Panta þarf tíma símleiðis hjá Sillu húsmóður í síma 856-4303 milli kl 11 og 12 virka daga. Tímarnir sem í boði eru eftirfarandi:

14:00

14:15

14:30

14:45

  • Við hvetjum ykkur til að hlaða niður í símana ykkar smitrakningnarappi almannavarna
  • Starfsmaður mun taka á móti ykkur við aðalinngang.   Munið að þvo og/eða spritta hendur áður en heimsókn hefst og að henni lokinni. Ekki koma við neitt í almannarýmum, farið beint inn til íbúa og beint út aftur.  Muna eigin andlitsgrímu (maska).
  • Athugið að heimsóknin er til ættingja þíns, staldrið ekki við til að ræða við aðra íbúa, ættingja eða starfsfólk. Ef þið óskið frekari upplýsinga um heilsufar aðstandenda ykkar þá er betra að hringja til að fá þær upplýsingar.
  • Virðið 2ja metra regluna og forðist snertingu við íbúa eins og hægt er.
  • Athugið að starfsfólk á deildum tekur ekki á móti tímapöntunum.
  • Ekki er heimilt að koma í heimsókn utan heimsóknartíma og ávallt þarf að panta tíma fyrirfram.

Aðrar breytingar sem verða frá 5. október 2020 á starfsemi Höfða

Iðjuþjálfun, sjúkraþjálfun, önnur þjálfun: Einstaklingsmeðferð verður fyrir íbúa og starfsfólk á heimil­inu. Einstaklingar utan úr bæ mega ekki koma inn á heimili til þjálfunar fyrr en frekari tilslakanir verða. Í sal sjúkraþjálfunar er nauðsynlegt að halda 2ja metra reglunni áfram og hámarksfjöldi í sal miðast við að þessi regla haldi. Hópameðferð skal áfram vera takmörkuð við að einstaklingar í sama sóttvarna­hólfi séu saman við æfingar.

Hárgreiðsla og hársnyrting/fótaaðgerð og fótsnyrting: Er aðeins leyfð fyrir heimilismenn og starfs­menn á hverjum tíma. Einstaklingar utan úr bæ mega ekki koma inn á heimilið til að fá þessa þjónustu á sama tíma og íbúar eru í sama rými. Gæta þarf vel að aðskilnaði íbúa frá utanaðkomandi gestum. Almenna reglan er áfram að einstaklingar í sama sóttvarnahólfi fái þjónustu á sama tíma.

Að lokum viljum við biðja ættingja að virða tímatakmarkanir og halda sig eingöngu inn á herbergi ástvinar síns.

ATHUGIÐ: Þessar reglur taka strax gildi og gilda á meðan neyðarstig almannavarna varir

Kær kveðja,

Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri

Ólína Ingibjörg Gunnarsdóttir hjúkrunarforstjóri

Sigurlín Gunnarsdóttir húsmóðir