Hertar heimsóknarreglur frá 28. október 2021

Ágætu íbúar, aðstandendur og aðrir gestir á Höfða

Í ljósi þess að COVID smitum hefur fjölgað verulega í okkar nærumhverfi hafa stjórnendur Höfða ákveðið að herða á heimsóknarreglum til þess að vernda íbúa Höfða.

Eftirfarandi reglur gilda varðandi heimsóknir frá og með 28. október 2021 þangað til annað verður tilkynnt:

  • Heimilið er opið fyrir heimsóknir á milli 13:00-21:00 alla daga vikunnar.
  • Grímuskylda- ALLIR gestir þurfa að bera andlitsgrímu meðan þeir eru inni á heimilinu, líka inn á herbergjum íbúa.  Ekki er heimilt að vera með margnota grímur.
  • Stjórnendur Höfða biðla til ættingja og gesta að komi ekki fleiri en tveir í heimsókn í einu og að sömu aðilar komi í heimsókn nokkra daga í röð og skipti svo við aðra.  Því færri sem ganga um heimilið því betra.
  • Ekki er heimilt að nýta sameiginleg rými eins og setustofur og borðstofur til heimsókna.  Heimilt er að nýta sameiginlegt rými á jarðhæð fyrir framan dagdvöl Höfða til heimsókna.
  • Virða skal 2ja metra regluna í samskiptum við starfsfólk.
  • Íbúum er áfram heimilt að fara út í garð og í gönguferðir með sínum nánustu, en einnig er heimilt að fara með íbúa út af heimilinu í bílferðir eða heimsóknir. Við biðlum til íbúa, aðstandenda og annarra gesta að fara ekki í mannfagnaði eða aðrar samkomur með íbúa.
  • Fullbólusettir aðstandendur sem dvalið hafa erlendis– eins og áður mega þeir koma í heimsókn að höfðu samráði við stjórnendur deilda og að því tilskyldu að þeir séu með öllu einkennalausir. Skylt er að hafa farið í skimun eftir að þeir koma til landsins og að niðurstaða liggi fyrir áður en þeir koma í heimsókn.
  • Óbólusettir aðstandendur sem eru að koma erlendis frá mega ekki koma í heimsókn inn á heimilin fyrr en 14 dagar eru liðnir frá heimkomu (undanþágu er hægt að fá í samráði við stjórnendur deildar ef um skyndileg veikindi/lífslokameðferð er að ræða hjá íbúa).
  • Undanþága frá reglum um heimsóknir hverju sinn, er aðeins veitt við mikil veikindi íbúa og þarf leyfi frá vaktstjóra deildar.

Sem fyrr er mikilvægt að hafa í huga að gestir mega ekki koma í heimsókn ef þeir:

  • eru í sóttkví.
  • eru í einangrun (einnig meðan beðið er niðurstöðu úr sýnatöku).
  • hafa verið í einangrun vegna COVID-19 smits og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift.
  • eru með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl.).
  • eru með einhver önnur almenn einkenni um veikindi.

Munið að sýna ýtrustu varkárni og virða sóttvarnaráðstafanir í heimsóknum. Við þurfum öll að hafa í huga persónulegar sýkingavarnir s.s. handþvott og handsprittun.

Kær kveðja,

Stjórnendur Höfða