Hjúkrunardeildarstjóri

Hjúkrunar- og dvalarheimilið Höfði á Akranesi auglýsir stöðu hjúkrunardeildarstjóra lausa til umsóknar.

Á Höfða eru 76 íbúar, 70 í hjúkrunarrýmum og 6 í biðhjúkrunarrýmum.  Nánari upplýsingar um heimilið er á heimasíðu þess www.dvalarheimili.is

Hæfnikröfur 
• Leitað er að einstaklingi með a.m.k. 5 ára starfsreynslu í hjúkrun, góða leiðtogahæfni, áhuga á    þjónustu við aldraða og getu til að takast á við krefjandi verkefni.
• Lögð er áhersla á faglegan metnað, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
• Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfileikar skilyrði. 
• Reynsla og/eða menntun á sviði stjórnunar er æskileg.

• Framhaldsmenntun á sviði hjúkrunar æskileg.

• Gerð er krafa um íslenskt hjúkrunarleyfi og góða íslenskukunnáttu. 

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Starfshlutfall er 90%.


Umsóknarfrestur er til 29. apríl 2024.

Nánari upplýsingar um stöðu hjúkrunardeildarstjóra veitir:

Ólína Ingibjörg Gunnarsdóttir hjúkrunarforstjóri, sími 856-4304, netfang: o.ingibjorg@dvalarheimili.is

Umsóknir og ferilskrá sendist til hjúkrunarforstjóra Höfða á netfangið o.ingibjorg@dvalarheimili.is. Öllum umsóknum verður svarað.