Hertar heimsóknarreglur 18.9.20

18. september 2020

Heimsóknir á Höfða hjúkrunar- og dvalarheimili.                              

HÆTTUSTIG almannavarna – COVID-19

  1. Heimsóknir eru leyfðar á eftirfarandi tíma:  Frá kl. 14:00 til kl. 16:00 (vinsamlegast virðið þessa tímasetningu) svo ekki komi til algjörrar lokunar
  2. Allir gestir eru beðnir að virða 2 metra regluna (nema maki)
  3. Allir gestir  þvo hendur sínar áður en lagt er af stað og spritta hendur í inngangi heimila.  
  4. Eingöngu nánustu aðstandendur mega koma í heimsókn og almenna reglan er að aðeins einn komi í heimsókn á dag
  5. Heimsóknargestir verða að fara eftir ítrustu leiðbeiningum um sóttvarnir í samfélaginu og sérstaklega er mikilvægt að virða eftirfarandi:
  6. Ekki vera í fjölmenni. Dæmi um hvað átt er hér við:
    1. Ekki fara í stórar veislur,   almenna reglan er að vera ekki í samkvæmi þar sem fleiri en 10 koma saman.
    1. Takmarka ferðir í verslanir. Ef þarft að fara í verslun, ekki fara á háannatíma. Fara frekar snemma morguns eða seinna um kvöld þegar minna er að gera.

Gestir mega ekki koma í heimsókn ef þeir:

  • Eru í sóttkví.
  • Eru í einangrun( einnig meðan beðið er niðurstöðu úr sýnatöku).
  • Hafa dvalið erlendis og ekki eru liðnir 7 dagar frá heimkomu.
  • Hafa verið í einangrun vegna COVID-19 smits og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift.
  • Eru með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverk, þreytu, kviðverki, niðurgang ofl.).
  • Heimsóknargestir eiga að fara beint inn og út úr herbergi aðstandenda og mega ekki dvelja í sameiginlegum rýmum. Vinsamlega virðið að hér eru íbúar sem kjósa að vera í sóttkví frá utanaðkomandi gestum og þetta er þeirra heimili.
  • Heimsóknargestur sem þarf að ná tali af starfsmanni er beðin að hringja til hans og bíða svo inn á herbergi þar til starfsmaður kemur til hans.

íbúar mega fara í bíltúr, göngutúr og í heimsóknir með þeim tilmælum að í þessum ferðum hitti íbúar í flestum tilfellum sömu aðila og þá sem koma í heimsókn til þeirra á hjúkrunarheimilið.

Reglur þessar taka þegar gildi.

Fh. Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis

Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri

Ólína Ingibjörg Gunnarsdóttir hjúkrunarforstjóri

Uppfærðar heimsóknarreglur 15.9.2020

        HÆTTUSTIG almannavarna – COVID-19

  • Heimsóknir eru leyfðar á eftirfarandi tíma:  Frá kl. 14:00 til kl. 17:00 (vinsamlegast virðið þessa tímasetningu)
  • Allir gestir eru beðnir að virða 1 metra regluna (nema maki)
  • Allir gestir  þvo hendur sínar áður en lagt er af stað og spritta hendur í inngangi heimila.  
  • Eingöngu nánustu aðstandendur mega koma í heimsókn og almenna reglan er að einn til tveir gestir komi í heimsókn á dag (geta komið saman eða í sitt hvoru lagi innan heimsóknartímabilsins).
  • Heimsóknargestir verða að fara eftir ítrustu leiðbeiningum um sóttvarnir í samfélaginu og sérstaklega er mikilvægt að virða eftirfarandi:
  • Ekki vera í fjölmenni. Dæmi um hvað átt er hér við:
    • Ekki fara í stórar veislur,   almenna reglan er að vera ekki í samkvæmi þar sem fleiri en 10 koma saman.
    • Takmarka ferðir í verslanir. Ef þarft að fara í verslun, ekki fara á háannatíma. Fara frekar snemma morguns eða seinna um kvöld þegar minna er að gera.

Gestir mega ekki koma í heimsókn ef þeir:

  • Eru í sóttkví.
  • Eru í einangrun( einnig meðan beðið er niðurstöðu úr sýnatöku).
  • Hafa dvalið erlendis og ekki eru liðnir 7 dagar frá heimkomu.
  • Hafa verið í einangrun vegna COVID-19 smits og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift.
  • Eru með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverk, þreytu, kviðverki, niðurgang ofl.).
  • Heimsóknargestir eiga að fara beint inn og út úr herbergi aðstandenda og mega ekki dvelja í sameiginlegum rýmum. Vinsamlega virðið að hér eru íbúar sem kjósa að vera í sóttkví frá utanaðkomandi gestum og þetta er þeirra heimili.
  • Heimsóknargestur sem þarf að ná tali af starfsmanni er beðin að hringja til hans og bíða svo inn á herbergi þar til starfsmaður kemur til hans.

Íbúar mega fara í bíltúr, göngutúr og í heimsóknir með þeim tilmælum að í þessum ferðum hitti íbúar í flestum tilfellum sömu aðila og þá sem koma í heimsókn til þeirra á hjúkrunarheimilið.

Reglur þessar taka þegar gildi.

Fh. Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis

Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri

Ólína Ingibjörg Gunnarsdóttir hjúkrunarforstjóri