Jónasarvaka

 

Í dag flutti Jónasarhópurinn úr Kópavogi skemmtidagskrá á Höfða. Sögumaður og dagskrárstjóri var Þórður Helgason cand mag og dósent við KHÍ. Þórarinn J.Ólafsson tenor söng við undirleik Julian Hewlett píanóleikara. Þá fluttu 7 konur ljóð úr ljóðabókinni Í sumardal. Ljóðin tengjast öll Jónasi Hallgrímssyni.

 

Mjög góð aðsókn var að þessari skemmtidagskrá og undirtektir góðar.

Sýning á handverki

Í tilefni af Vökudögum verður opnuð sýning á handverki íbúa og starfsmanna Höfða n.k. föstudag kl. 17. Nokkrir íbúar verða með sölubása á sýningunni sem stendur til sunnudags.

 

Við opnunina syngur nýstofnaður kór starfsmanna Höfða nokkur lög undir stjórn Heiðrúnar Hámundardóttur og boðið verður upp á léttar veitingar.

 

Fræðsla um heilabilun

Eufemia Berglind Guðnadóttir hjúkrunarfræðingur á Höfða hélt í dag fyrirlestur um heilabilun fyrir starfsfólk, íbúa og aðstandendur. Um 50 manns sóttu fyrirlesturinn.

Eufemia Berglind var með kynningu á glærum og fór yfir mismunandi kenningar um orsök og afleiðingar heilabilunar. Í máli hennar kom fram að Alsheimer sjúkrómur getur greinst í einstaklingum frá 40 ára aldri og að endurhæfing sjúklinga er mjög mikilvæg til að viðhalda sem lengst sem mestu minni, en í sjúkdómsferlinu eru einkenni oft hægfara og óljós.

Eufemia Berlind og móðir hennar, Lilja G.Pétursdóttir íbúi á Höfða, færu heimilinu að gjöf fjórar bækur um heilabilun.

 

Söngskemmtun

 

Davíð Ólafsson bassi og Stefán Helgi Stefánsson tenór fluttu sönglög og dúetta á Höfða í dag. Söngur þeirra félaga vakti mjög mikla hrifningu hjá íbúm Höfða sem troðfylltu samkomusalinn. Davíð og Stefán Helgi munu væntanlega heimsækja Höfða aftur í desember.

Kvöldvaka

Hin árlega kvöldvaka sem starfsfólk Höfða býður íbúum til var haldin s.l. miðvikudagskvöld. Boðið var upp á kökur og góðgæti sem starfsmenn komu með að heiman og voru veitingar glæsilegar að vanda. Þetta árlega boð lýsir þeim góða anda sem ríkir á Höfða.

 

Guðjón setti skemmtunina og fór með kveðskap í léttum dúr og síðan rak hvert skemmtiatriðið annað: Magadansflokkur frá Mangó dansstúdíói sýndi listir sínar, þrjár ungar stúlkur Sunnar Rós Sigmundsdóttir, Aldís Eir Valgeirsdóttir og Aldís Lind Benediktsdóttir sungu nokkur lög, Margrét Saga söng nokkur lög, m.a. eitt frumsamið, við undirleik föður síns Gunnars Sturlu Hervarssonar og hópur dansara frá Feban sýndi línudans.

 

Skemmtinefnd skipuðu þær Erla B.Sveinsdóttir, Ester Theódórsdóttir, Gréta Jóhannesdóttir, Guðný S.Sigurðardóttir og Þórey Einarsdóttir.

 

Þetta skemmtikvöld tókst frábærlega vel og var mjög vel sótt af íbúum og starfsmönnum.

 

Ball

Síðdegis í dag var ball á Höfða. Hljómsveitin Bjórbandið lék og söng gömlu góðu lögin, en hljómsveitina skipa Baldur Árnason, Árni Aðalsteinsson, Helgi Jensson og Smári Guðbjartsson.

 

Mikil stemning var á ballinu og dansgólfið troðfullt allan tímann.

 

Næsta ball með bjórbandinu verður væntanlega í nóvember.

Sláturgerð

Í gær og fyrradag hafa íbúar Höfða staðið í sláturgerð með aðstoð nokkurra starfsmanna. Tekin voru 80 slátur. Fólk var einbeitt við sláturgerðina og handtökin fagmannleg. Augljóst var að þeir sem að sláturgerðinni stóðu hafa tekið slátur allan sinn búskap.

 

Sigríður Guðmundsdóttir lét sig ekki vanta í sláturgerðina og saumaði vambir af miklum krafti, en hún verður 100 ára eftir 4 mánuði. Var það mál manna að hún hefði allt að 90 ára reynslu af sláturgerð.

 

Létt var yfir mannskapnum og augljóst að allir höfðu af þessu gaman. Fyrsta sláturmáltíðin verður framreidd á morgun, en slátrið er sívinsæll matur hjá íbúum og starfsfólki Höfða.

Yfirblandari í sláturgerðinni var sem endranær Svandís Stefánsdóttir.