Í gær, á annan páskadag, var hátíðarguðsþjónusta í Höfðasalnum. Sr. Eðvarð Ingólfsson prédikaði og Ragnheiður Guðmundsdóttir djákni á Höfða þjónaði fyrir altari. Kór Akraneskirkju söng undir stjórn Sveins Arnars Sæmundssonar.
Guðsþjónustan var mjög vel sótt.Þetta var fyrsta guðsþjónustan í nýja salnum og nóg pláss fyrir alla, en oft var ansi þröngt í gamla salnum við slíkar athafnir.
Kór Akraneskirkju hélt tónleika í nýja Höfðasalnum s.l. laugardag undir stjórn Sveins ArnarSæmundssonar. Tónleikarnir voru mjög vel sóttir og undirtektir góðar.
Að sögn kórstjóra og söngfólks er mjög góður hljómburður í nýja salnum.
Hin árlega Höfðagleði var haldin s.l. föstudagskvöld. Á Höfðagleði mæta íbúar, starfsmenn, fyrrverandi starfsmenn sem hafa hætt vegna aldurs og stjórn Höfða.
Boðið var upp á glæsilega þriggja rétta veislumáltíð sem Haukur kokkur og hans fólk í eldhúsinu reiddi fram.
Guðjón setti skemmtunina og bauð fólk velkomið í nýja Höfðasalinn sem var tekinn í notkun þetta kvöld. Veislustjóri var Anton Ottesen og kryddaði hann kynningu atriða með smellnum gamansögum. Adda fór með gamanmál. Ræðumaður kvöldsins var Halldór Blöndal. Loks söng bæjarlistamaðurinn Hanna Þóra Guðbrandsdóttir nokkur lög við undirleik Sveins ArnarsSæmundssonar.
Dregið var í happdrætti þar sem íbúar og starfsmenn fengu góða vinninga í boði EinarsÓlafssonar kaupmanns og Kjarnafæðis.
Að lokum var dansað til miðnættis við undirleik Jóns Heiðars Magnússonar.
Um 170 manns tóku þátt í Höfðagleðinni sem tókst vel að vanda.
Frá vinstri: Helga Atladóttir, Anton Ottesen og Guðjón Guðmundsson.
Frá vinstri: Júlíana Karvelsdóttir, Sigurbjörg Ragnarsdóttir, Guðný Aðalgeirsdóttir, Sólveig Kristinsdóttir og Hildur Bernódusdóttir. Lengst til hægri sést Hildur Þorvalsdóttir.
Frá vinstri: Ragnhildur Theódórsdóttir, Kristín Guðmundsdóttir, Ragnheiður Guðmundsdóttir, Sigurbjörg Halldórsdóttir og Sigrún Sigurjónsdóttir
Frá hægri: Katrín Baldvinsdóttir, Steina Ósk Gísladóttir, Arína Guðmundsdóttir, Vilborg Kristinsdóttir, Sóley Sævarsdóttir, Hulda Ragnarsdóttir, Hildur Þorvaldsdóttir og fremst til vinstri Guðmunda Maríasóttir. Lengst til vinstri sést Sigrún Valgarðsdóttir.
Frá vinstri: Guðrún Kjartansdóttir og Bjarney Hagalínsdóttir.
Frá vinstri: Guðmunda Maríasdóttir, Sigríður Sigurlaugsdóttir, Dagný Guðmundsdóttir, Margrét Rögnvaldsdóttir, Lára Jóhannesdóttir, Hildur Bernódusdóttir, Hulda Ragnarsdóttir, Steina Ósk Gísladóttir og Katrín Baldvinsdóttir.
Frá vinstri: Ásta Björk Arngrímsdóttir, Helga Jónsdóttir, Guðrú Björnsdóttir, Guðrún Kjartansdóttir og Bjarney Hagalínsdóttir. Fremst til hægri sést Þóranna Kjartansdóttir.
Frá vinstri: María Kristinsdóttir og Ingigerður Höskuldsdóttir.
Grétar Jónsson fyrir miðri mynd. Hjá honum stendur Margrét A.Guðmundsdóttir. Lengst til hægri sést Áslaug Hjartardóttir.
Vinstra megin borðs situr Maggi G.Ingólfsson, við borðsendann er Ingibjörg Rósa Aðalsteinsdóttir. Frá hægri sjást: Halla Ingólfsdóttir, Lea Björnsdóttir og Aðalsteinn Sigurgeirsson.
Frá hægri: Guðrún Jónsdóttir, Vigfús Sigurðsson, Lúðvík Björnsson, Ólafur Ólafsson, Einar Jónsson, Guðrún Finnbogasdóttir, Sjöfn Jóhannesdóttir, Gunnar Elíasson og Sigríur Jónsdóttir. Vinstra megin við næsta borð sést Guðrún Ólafsdóttir og hægra megin hjónin Ingibjörg Hjartar og Þorgils Stefánsson, þá Lilja Pétursdóttir, Skúli Ketilsson og Rannveig Hálfdánardóttir.
Bjór og gos á boðstólum.
Halldór Blöndal og Kristján Ásgeirsson rifja upp góðu gömlu dagana í Hvalnum. Hægra megin er kona Kristjáns, Ólöf Hjartardóttir.
Frá vinstri: Benedikt Jónmundsson, Kristjáns Sveinsson og Kjartan Kjartansson.
Lengst til vinstri eru Edda Guðmundsdóttir og Maggi G.Ingólfsson og frá hægri Erla Sveinsdóttir, Halla Ingólfsdóttir og Lea Björnsdóttir.
Vegna framkvæmda við stækkun þjónusturýma hefur samkomusalur Höfða verið lokaður frá því í maí í fyrra. Hefur því allt félagsstarf farið fram á göngum hússins s.l. 10 mánuði.
Nú er framkvæmdum við nýja samkomusalinn lokið og er hann hinn glæsilegasti og mun stærri en gamli salurinn. Salurinn verður tekinn í notkun í kvöld þegar hin árlega Höfðagleði verður haldin.
Höfði hefur eignast nýtt málverk Bjarna Þórs Bjarnasonar og prýðir það salinn. Verkið nefnir hann SAGAN ÖLL og er af helstu viðburðum og atvinnulífi Hvalfjarðar í gegnum tíðina. Yfir öllu vakir svo Hallgrímur Pétursson með passíusálmana í hendi.
Séð yfir hluta samkomusalar og inn í nýja matsalinn.
Málverk Bjarna Þórs Bjarnasonar í samkomusalnum: „Sagan öll“ Þar má sjá helstu viðburði í Hvalfirði í gegnum tíðina. Og yfir öllu vakir svo sálmaskáldið séra Hallgrímur í Saurbæ með passíusálmana í hendi.
S.l. föstudagskvöld bauð Höfði starfsmönnum, fyrrverandi starfsmönnum og gestum á einkasýningu á kvikmyndinni OKKAR EIGIN OSLÓ í Bíóhöllinni. Um 170 manns mættu á sýninguna og skemmtu sér vel. Í hléi var boðið upp á pizzu og gos.
Í síðustu viku gaf Arion banki Höfða 3 tölvur og tölvuskjái. Einnig gaf Íslandsbanki tölvuskjá. Fyrr í vetur gaf Sjóvá 3 tölvur. Þessar góðu gjafir hafa nýst Höfða mjög vel og eru gefendum færðar bestu þakkir fyrir góðan hug til heimilisins.
Velferðarráðuneytið hefur tilkynnti Höfða að dvalarrýmum verði fækkað um 3 og hjúkrunarrýmum um 2. Íbúar Höfða verða því 73 í stað 78 í dag. Ekki verður vistað í þau herbergi sem losna þar til þessi fækkun hefur náðst.
Stjórn Höfða hefur beðið ráðherra að endurskoða þessa ákvörðun í ljósi þess að nýting rýma á Höfða hefur um langt árabil verið 100% og jafnan er langur biðlisti eftir plássi á Höfða. Ennfremur verður starfsemi E-deildar Sjúkrahúss Akraness breytt þannig að þar verða ekki langlegusjúklingar og mun það að sjálfsögðu auka álag á hjúkrunardeild Höfða.
Á aðfangadag var Ragnheiður Guðmundsdóttir djákni með helgistund. Þar sungu barnabörn hennar jólasálma við undirleik sonar Ragnheiðar.
Á annan jóladag var hátíðarguðsþjónusta. Sr. Eðvarð Ingólfsson predikaði. Kór Akraneskirkju söng við undirleik Sveins Arnars Sæmundssonar stjórnanda kórsins.
Í morgun var helgistund djákna. Þar söng kór Saurbæjarprestakalls. Undirleik annaðist kórstjórinn Örn Magnússon.
Allar þessar samkomur voru vel sóttar og sköpuðu hátíðarstemningu á Höfða.
Ragnheiður Guðmundsdóttir djákni. Sitjandi eru afkomendur hennar.
Kór Saurbæjarprestakalls syngur. Undirleikari er Örn Magnússon.