Vökudagar á Höfða

Hinir árlegu menningardagar Skagamanna, Vökudagar, eru framundan. Að vanda tekur Höfði þátt í Vökudögum og verða opnaðar sýningar á málverkum Smára Jónssonar og vatnslitamyndum Jóhönnu Stefánsdóttur frá Skipanesi n.k. föstudag kl. 17.

Við opnunina syngur Sigursteinn Hákonarson nokkur lög við undirleik Sveins Arnars Sæmundssonar bæjarlistamanns Akraness 2012 og boðið verður upp á léttar veitingar.