Vökudagar

Í tilefni Vökudaga var opnuð sýning á málverkum Smára Jónssonar og vatnslitamyndum Jóhönnu Stefánsdóttur s.l. föstudag. Við opnunina söng Bjarni Atlason nokkur lög við undirleik Sveins Arnars Sæmundssonar bæjarlistamanns Akraness 2012. Bjarni hljóp í skarðið fyrir Sigurstein Hákonarson sem ekki gat sungið vegna kvefs.


Sýningarnar standa til 15.nóvember.