Í morgun voru opnuð tilboð í fyrri áfanga stækkunar þjónusturýma, þ.e.a.s. fokhelda byggingu. 3 tilboð bárust:
Sjammi ehf. kr. 55.945.473
Trésmiðjan Akur ehf. kr. 59.767.926
Loftorka í Borgarnesi ehf. kr. 63.408.350
Tilboðin verða nú yfirfarin og í framhaldi af því samið við væntanlegan verktaka. Gert er ráð fyrir að verkinu ljúki seint í nóvember.