Heimsóknarbann á Höfða

Í ljósi stöðunnar á smitum vegna COVID-19 á Akranesi, höfum við stjórnendur Höfða, ákveðið að loka Höfða fyrir öllum heimsóknum fram yfir helgi.

Staðan verður endurmetin á mánudaginn.

Eingöngu verða veittar undanþágur í tilfellum þar sem um alvarleg veikindi er að ræða eða ef einstaklingur er kominn á lífslokameðferð.

Við þökkum kærlega fyrir þann skilning og hlýhug sem íbúar og aðstandendur hafa hingað til sýnt í orði og verki.

Með vinsemd og virðingu,

Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri

Ólína Ingibjörg Gunnarsdóttir hjúkrunarforstjóri