Áframhaldandi heimsóknarbann á Höfða

Í ljósi stöðunnar á smitum vegna COVID-19 á Akranesi, höfum við stjórnendur Höfða, ákveðið að framlengja lokun á Höfða fyrir öllum heimsóknum.

Staðan verður endurmetin í lok vikunnar.

Eingöngu verða veittar undanþágur í tilfellum þar sem um alvarleg veikindi er að ræða eða ef einstaklingur er kominn á lífslokameðferð.

Með vinsemd og virðingu,

Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri

Ólína Ingibjörg Gunnarsdóttir hjúkrunarforstjóri