Guðrún hættir

Guðrún Sigurbjörnsdóttir sem rekið hefur fótaaðgerðastofu á Höfða í aldarfjórðung  hætti rekstri stofunnar í dag. Á síðasta fundi stjórnar Höfða færði stjórnin Guðrúnu þakkir fyrir frábæra þjónustu við íbúa Höfða í 25 ár.

Nína Borg Reynisdóttir tekur við rekstri stofunnar um næstu mánaðamót. Hún er boðin velkomin á Höfða