Grænlenskir eldri borgarar í heimsókn

Í gær heimsótti Höfða um 20 manna hópur eldri borgara frá vinabæ Akraness á Grænlandi, Qagortog. Gestirnir skoðuðu heimilið, sungu nokkur lög í matsal, sýndu handverk og þáðu kaffi og meðlæti.