Annað árið í röð er sáð og plantað út í nýja gróðurkassa á Höfða. Í kössunum er m.a. jarðarber, grænkál, steinselja og ýmsar kryddplöntur s.s. graslaukur, mynta, blóðberg, origanó og timjan. Vaskur hópur heimilismanna hefur unnið að ræktuninni undir stjórn þeirra Lísu sjúkraþjálfara, Maríu iðjuþjálfa og fleiri starfsmanna. Að ræktuninni hafa komið þær Jóhanna Ólafsdóttir, Rafnhildur Árnadóttir, Guðrún Jónsdóttir, Guðný Þorvaldsdóttir, Sigríður Jónsdóttir, Guðborg Elíasdóttir og Guðbjörg Guðmundsdóttir. Síðan hafa þeir Jóhannes Páll Halldórsson og Kristján Pálsson verði duglegir við að vökva plönturnar.
Greinasafn fyrir flokkinn: Uncategorized
Kvennahlaupið á Höfða
Síðastliðinn föstudag var gengið í fyrsta sinn kvennahlaupið á Höfða, gengið var frá Höfða inn í Leyni og tilbaka. Þátttakendur voru um 40 og skapaðist mikil og góð stemming meðal þátttakanda. Eftir „hlaupið“ var boðið upp á léttar veitingar í Höfðasal um leið og allir þátttakendur fengu verðlaunapening. Veðrið lék við alla og var það samdóma álit allra að vel hafi tekist til og án vafa verði þetta að árlegum viðburð á Höfða.
Guðni Ágústsson heimsækir Höfða
Guðni Ágústsson fyrrverandi landbúnaðarráðherra heimsótti Höfða í dag og rabbaði við Höfðafólk í gamansömum tón í troðfullum Höfðasal. Var gerður góður rómur að spjalli Guðna sem fór á kostum að vanda.
Guðjón þakkaði Guðna komuna og þakkaði í leiðinni Höfðafólki fyrir ánægjuleg samskipti s.l. 8 ár, en hann hættir störfum á Höfða á morgun. Guðjón sagði að það hefðu verið forréttindi að starfa með íbúum og starfsfólki Höfða og bað Guð og gæfuna að fylgja þeim öllum. Guðjón kynnti eftirmann sinn, Kjartan Kjartansson, og óskaði honum velfarnaðar í starfi.
Þá ávarpaði Kjartan Kjartansson fólk og kynnti sig, en hann tekur við starfi framkvæmdastjóra 1.júní. Sagði hann starfið leggjast vel í sig og að hann hlakkaði til að starfa með Höfðafólki.
Vel heppnaður vormarkaður
S.l. laugardag var haldinn vormarkaður á Höfða. Þar var meðal annars í boði úrval af brauði, kleinum, kökum, sultum, kæfu, garðplöntum, fötum, bókum, smámunum o.fl. sem starfsmenn seldu til fjáröflunar fyrir væntanlega utanlandsferð.
Tveir íbúar, Ólöf Hjartardóttir og Sigmundur H.H.Hansen, voru með stórskemmtilega sölubása þar sem boðið var upp á falleg gjafakort, skartgripi og útskurð, allt unnið af seljendum.
Þá var boðið upp á svæðanudd og vaxmeðferð á höndum.
Í samkomusalnum var voðið upp á kaffi og vöfflur og ávaxtasafa fyrir börnin. Þar var troðfullt allan opnunartímann, en mörg hundruð manns sóttu þennan vel heppnaða vormarkað.
Sigurlín ráðin húsmóðir
Á fundi stjórnar Höfð í fyrradag var Sigurlín Gunnarsdóttir ráðin húsmóðir á Höfða.
17 umsækjendur voru um starfið.
Sigurlín sem er sjúkraliði á Höfða tekur við starfinu af Margréti A.Guðmundsdóttur 1.júlí n.k.
Heimsókn frá Grund
Í dag heimsóttu Höfða 11 hjúkrunarfræðingar frá Grund dvalar- og hjúkrunarheimili í Reykjavík. Helga Atladóttir hjúkrunarforstjóri fræddi þær um starfsemi Höfða og sýndi þeim heimilið.
Óvenjuleg heimsókn
Í dag kom Ragnheiður Guðmundsdóttir djákni með tvo tveggja daga heimalninga frá Ásfelli í heimsókn á Höfða.
Þessi heimsókn vakti mikla ánægju, jafnt meðal íbúa og starfsmanna og ekki var annað að sjá en að ferfætlingunum liði vel á Höfða
Vormarkaður á Höfða
Laugardaginn 25.maí verður hinn sívinsæli vormarkaður á Höfða kl. 14,00-16,30. Þar munu starfsmenn bjóða upp á mikið úrval af sultum, kæfum, brauði, kleinum, garðplöntum, fötum o.fl. Einnig verður boðið upp á svæðanudd.
Þá verða nokkrir íbúar með sölubása þar sem meðal annars verður boðið upp á falleg gjafakort, skartgripi og handavinnu, allt unnið af seljendum.
Nemendatónleikar
Í gær heimsótti Höfða hópur ungra nemenda Tónlistarskólans á Akranesi. Þetta voru nemar í fiðluleik, píanóleik og söng sem fluttu 17 tónlistaratriði. Með þeim voru kennarar þeirra Guðbjörg Leifsdóttir, Kristín Þóra Haraldsdóttir og Steinunn Árnadóttir.
Mikil aðsókn var að þessum tónleikum og hafði Höfðafólk mikla ánægju af tónlistarflutningi krakkanna.
Kjartan ráðinn framkvæmdastjóri
Á fundi stjórnar Höfða í gær var samþykkt að ráða Kjartan Kjartansson rekstrarfræðing í starf framkvæmdastjóra Höfða.
Kjartan sem er starfsmaður PricewaterhouseCoupers tekur væntanlega við starfinu um næstu mánaðmót.