Í dag komu saman í iðjuþjálfun 6 konur af hjúkrunardeild og bökuðu vöfflur með Ingibjörgu iðjuþjálfa. Síðan var sest að veitingum, drukkið kaffi með rjómavöfflum og spjallað um heima og geyma.
Svo mikill var krafturinn í bakstrinum að brunavarnakerfi fór í gang. Húsverðir brugðust skjótt við og stoppuðu baksturinn í miðjum klíðum.
Í gær heimsótti Höfða rúmlega 20 manna hópur frá Qagortog, vinabæ Akraness í Grænlandi. Hópurinn skoðaði heimilið og lýsti mikilli aðdáun á aðbúnaði öllum.
Að lokinni skoðun sungu Grænlendingarnir og dönsuðu þjóðdansa í samkomusal Höfða. Ung stúlka lék á fiðlu og kona á níræðisaldri lék á harmonikku. Undirtektir íbúa Höfða voru frábærar og klöppuðu þeir listamennina upp aftur og aftur.
Að lokum bauð Höfði gestunum upp á kaffi og meðlæti.
Halla Jónsdóttir í góðum félagsskap grænlensku gestanna.
Gestirnir sýndu grænlenska dansa.
Grænlendingarnir sýndu þjóðdansa í þjóðbúningum.
Grænlensku gestirnir.
Vel fór á með Tómasi Sigurðssyni og grænlensku blómarósunum.
Sungið við undirleik ungs fiðluleikara. Ása Ólafsdóttir situr næst ræðustólnum.
Dansað af innlifun.
Tómas Sigurðsson og Jónína Finsen til vinstri og Steinunn Jósefsdóttir til hægri fylgjast með dansinum.
Tómas Sigurðsson alsæll með grænlensku meyjunum.
Grænlendingarnir sungu nokkur lög. Steinunn Jósefsdóttir til vinstri og Ása Ólafsdóttir til hægri.
Myndarlegir Grænlendingar.
Dans, dans, dans
Kórsöngur
Grænlendingarnir á svölum Höfða.
Vel var mætt í samkomusalinn til að horfa á skemmtiatriði Grænlendinganna.
Hjónin Sigrún Stefánsdóttir og Tómas Jónsson til vinstri fylgjast með dansinum.
Grænlenskur harmonikkuleikari.
Sungið og spilað.
Grænlensk börn fylgdu hópnum.
Í fremsu röð frá vinstri: Sigríður Guðmundsdóttir, Jónína Finsen, ? , Magni Ingólfsson, Björn Sigurjbjörnsson, Jón Ákason, Halla Jónsdóttir, ? , Ragnar Guðmundsson.
Einar Oddur Kristjánsson alþingismaður, varaformaður fjárlaganefndar Alþingis, heimsótti Höfða í gær. Einar Oddur ræddi við Benedikt Jónmundsson formann stjórnar Höfða og Guðjón Guðmundsson framkvæmdastjóra um stöðu Höfða og starfsemi heimilisins.
Nýkjörin stjórn Höfða hélt sinn fyrsta fund í gær. Samkvæmt nýrri skipulagsskrá fyrir Höfða tilnefnir bæjarstjórn Akraness formann stjórnar og tvo aðra stjórnarmenn en Hvalfjarðarsveit einn stjórnarmann.
Formaður stjórnar er Benedikt Jónmundsson, aðrir fulltrúar tilnefndir af bæjarstjórn Akraness Karen Jónsdóttir og Rún Halldórsdóttir, fulltrúi Hvalfjarðarsveitar er Anton Ottesen. Á þessum fyrsta fundi var Anton kosinn varaformaður og Karen ritari.
Í gær var hin árlega sumarferð Höfðafólks. Um 50 íbúar Höfða, dagvistarfólk og íbúar Höfðagrundarhúsa tóku þátt í ferðinni ásamt nokkrum starfsmönnum. Lagt var af stað kl. 13 og ekið austur fyrir fjall. Á Kambabrún kom Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra í bílinn og var leiðsögumaður austan fjalls. Ekið var um Selfoss, Stokkseyri, Eyrarbakka, Ölfus og Hveragerði og drukkið kaffi í hinu glæsilega veitingahúsi Hafið bláa við ósa Ölfusár. Leiðsögn Guðna var einstaklega fróðleg og skemmtileg.
Guðni og Margrét kona hans buðu síðan öllum hópnum upp á veitingar á sólpallinum við heimili sitt á Selfossi þar sem Margrét A.Guðmundsdóttir afhenti Margréti konu Guðna lítinn þakklætisvott fyrir höfðinglegar móttökur og Guðjón Guðmundsson afhenti Guðna áletraða afsteypu af Grettistaki í þakklætisskyni fyrir framlag hans til að gera þessa ferð ógleymanlega. Síðan var ekið heim um hina fögru Þingvallaleið og Mosfellsdal og komið að Höfða kl. 19,20
Veðrið lék við okkur, blæjalogn, sólarlaust og hlýtt. Almenn ánægja var með ferðina, sem tókst í alla staði mjög vel.
Guðni Ágústsson segir ferðalöngum frá því sem fyrir augun ber.
Guðni Ágústsson hafði frá mörgu að segja
Frá vinstri: Magni Ingólfsson, Grétar Jónsson, Guðjón Bjarnason, Eiríkur Jensen og Tómas Sigurðsson.
Hjónin Hákon Björnsson og Sigríður Sigursteinsdóttir.
Frá vinstri: Valgerður Einarsdóttir, Guðbjartur Andrésson, Sigríður Steinsdóttir, Björg Hallvarðsdóttir, Sigurbjörg Sæmundsdóttir og Magnús Guðmundsson.
Frá vinstri: Katrín Árnadóttir, Hafsteinn Sigurbjörnsson, Lára Ágústsdóttir, Auður Sæmundsdóttir og Ingibjörg Ólafsdóttir.
Frá vinstri: Gíslína Magnúsdóttir, Jóhanna Þorleifsdóttir, Lilja Pétursdóttir Helga Guðjónsdóttir og Sigríður Steinsdóttir.
Frá vinstri: Ólafur Þórðarson, Sigurður Halldórsson, Kristján Pálsson, Jón Einarsson, Sigrún Halldórsdóttir og Skúli Þórðarson.
Frá vinstri: Ásta Kristjánsdóttir, Aðalheiður Arnfinnsdóttir og Sigrún Halldórsdóttir.
Frá vinstri: Ragnheiður Guðbjartsdóttir og Sigríður Bjarnadóttir.
Kristinn Finnsson og Björn Sigurbjörnsson. Að baki þeim standa frá vinstri: Ragna Ragnarsdóttir, Svava Eiríksdóttir og Lilja G.Pétursdóttir.
Frá vinstri: Ásta Kristjánsdóttir, Ragna Ragnarsdóttir og Katrín Baldvinsdóttir.
Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra heimsótti Höfða í dag. Ráðherrann spjallaði við dagvistarfólkið, leit inn hjá mörgum íbúum hússins og heilsaði upp á starfsfólk. Einar hafði orð á því þegar hann kvaddi heimilisandinn væri góður og aðbúnaður allur til fyrirmyndar.
Kaffihúsakvöld var á Höfða í gærkvöldi. Í boði voru kaffi, kökur og léttar veitingar. Gísli S.Einarsson bæjarstjóri sá um að halda uppi fjöri með harmonikkuleik, söng og sögum, Hallgrímur Árnason tók lagið með Gísla, Sigurbjörg Halldórsdóttir fór með ljóð og Eggert Sigurðsson sagði mergjaðar lífsreynslusögur.
Eins og jafnan áður var góð aðsókn að þessu kaffihúsakvöldi, setið á hverju borði í samkomusalnum og létt yfir fólki.
Hallgrímur Árnason
Frá vinstri: Sigríður Sigursteinsdóttir, Hákon Björnsson og Herdís Ólafsdóttir.
Frá vinstri: Svandís Stefánsdóttir, Guðjón Guðmundsson, Guðný Aðalgeirsdóttir, Edda Guðmundsdóttir, Magni Ingólfsson, Unnur Guðmundsdóttir og Sigurbjörg Halldórsdóttir. Sigurjón Jónsson snýr baki í myndavélina.
Skúli Þórðarson. Vil vinstri sjást Málfríður Þorvaldsdóttir, Bára Pálsdóttir og Sigríður Sigursteinsdóttir. Yil hægri er Guðjón Guðmundsson.
Fremst sitja Halla Jónsdóttir og Aðalheiður Arnfinnsdóttir. Lengst til vinstri eru hjónin Sveinn Jónsson og Hallveig Eiríksdóttir og hjónin Gunnar Guðjónsson og Guðbjörg Pétursdóttir. Á næsta borði eru til vinstri Sigrún Halldórsdóttir og Bjarni Guðmundsson. Við borðsendann Björn Sigurbjörnsson og lengst til hægri Steinunn Hafliðadóttir.
Systurnar Rut og Sigríður Jónsdætur. Fjær frá vinstri: Guðjón Guðmundsson Stefán Bjarnason, Gunnar Guðjónsson, Guðbjörg Pétursdóttir, Hallveig Eiríksdóttir og Sveinn Jónsson.
Frá vinstri: Margrét Níelsdóttir, Bára Pálsdóttir og Sigríður Sigursteinsdóttir.
Frá vinstri: Sigurveig Eyjólfsdóttir, Haraldur Magnússon, Kristín Magnúsdóttir, Hjördís Guðmundsdóttir, Arína Guðmundsdóttir , Eggert B.Sigurðsson og Sigríður Guðmundsdóttir.
Frá vinstri: Sigurður Halldórsson, Sigríður Steinsdóttir og Steinunn Hafliðadóttir.
Gísli S.Einarsson þenur nikkuna. Fremst til vinstri er Ragnar Guðmundsson og að baki honum Skúli Þórðarson. Lengst til hægri eru Sigurbjörg Halldorsdóttir, Unnur Guðmundsdóttir og Magni Ingólfsson.
Til vinstri er Kristinn Finnsson, þá hjónin Gunnar Guðjónsson og Guðbjörg Pétursdóttir og lengst til hægri Björn Sigurbjörnsson.
Frá vinstri: Kristín Magnúsdóttir, Hjördís Guðmundsdóttir og Arína Guðmundsdóttir.
Frá vinstri: Ólafía Magnúsdóttir og Helga Árnadóttir.
Frá vinstri: Guðjón Guðmundsson, Eggert B.Sigurðsson, Sjöfn Jóhannesdóttir og Kristinn Finnsson.
Frá vinstri: Jónína Finsen, Málfríður Þorvaldsdóttir og Sigríður Ármannsdóttir. Að baki Jónínu spilar Gísli S.Einarsson á harmonikkuna.
Frá vinstri: Þuríður Jónsdóttir og Sigrún Stefánsdóttir.
Eggert B.Sigurðsson. Að baki honum sitja Hjördís Guðmundsdóttir og Arína Guðmundsdóttir.
Sigurjón Jónsson og Svandís Stefánsdóttir.
Sigurbjörg Oddsdóttir, Sigrún Halldórsdóttir og Bjarni Guðmundsson.
Sveinn Jónsson og Stefán Bjarnason.
Lára Gunnarsdóttir, Valgerður Einarsdóttir, Rannveig Jóhannesdóttir og Einar Þóroddsson.