Nýlokið er hinu árlega Boccia móti Höfða. Að þessu sinni tóku 10 sveitir þátt og var hörð keppni á mótinu. Sveitin Hrútar sigraði með 28 stig, en sveitina skipuðu Kristján Pálsson, Gunnar Elíasson og Jóhannes Páll Halldórsson. Í öðru sæti var sveitin Stráin með 23 stig, en sveitina skipuðu Magnús Guðmundsson, Guðrún Jónsdóttir og Guðbjörg Guðmundsdóttir. Í þriðja sæti var sveitin Skýin með 21 stig, en sveitina skipuðu Agnes Sigurðardóttir, Ásta Albertsdóttir og Jóhanna Ólafsdóttir.
Verðlaunaafhending fór fram í mótslok og fengu 3 efstu sveitirnar verðlaunagripi. María iðjuþjálfari ásamt aðstoðarmönnum sáu um dómarstörf og stjórnuðu mótinu af röggsemi og léttleika.
Tvö starfsmannalið tóku þátt í mótinu og komust ekki með tærnar þar sem íbúarnir höfðu hælana.
Allar færslur eftir user7sj1fc4mt
500 íbúi Höfða
Laugardaginn 2.febrúar flutti Kristjana Jónsdóttir inn á Höfða og varð þar með 500 íbúi heimilisins frá því það var opnað í febrúar 1978.
Að því tilefni færði Kristján Sveinsson formaður stjórnar Höfða Kristjönu blómvönd að gjöf.
Tilmæli til gesta Höfða vegna heimsókna hafi þeir verið veikir
Frá starfsfólki Höfða
Árlega koma upp faraldrar ýmissa niðurgangspesta og inflúensu sem ganga milli manna. Heilbrigðir einstaklingar verða misjafnlega mikið veikir og jafna sig oftast fljótlega en geta verið smitandi í nokkra daga.
Á hjúkrunar- og dvalarheimilum liggja einstaklingar sem geta verið mjög viðkvæmir fyrir þessum sýkingum og verða því oft alvarlega veikir ef þeir smitast.
• Ef þú hefur verið með niðurgang, uppköst eða einkenni eins og beinverki, höfuðverk eða hita undanfarna 2 sólarhringa biðjum við þig um að fresta heimsókninni.
Með þessu viljum við vernda íbúa Höfða sem gætu smitast.
Þér er velkomið að hringja og fá upplýsingar um aðstandanda þinn eða tala við hann í síma.
Helga Atladóttir hjúkrunarforstjóri, 15.janúar 2013
Gjöf til Höfða
Vinkonurnar Friðmey Ásgrímsdóttir og Marey Edda Helgadóttir komu færandi hendi og gáfu Höfða afrakstur tómbólu sem þær stóðu fyrir. Alls söfnuðu þær 6.290 krónum.
Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri á Höfða veitti gjöfinni viðtöku og þakkaði þessa góðu gjöf og þann hlýhug sem henni fylgir.
Gleðilegt ár
Íbúar, starfsmenn og stjórn Höfða senda lesendum heimasíðunnar bestu kveðjur og óskir um gott og farsælt komandi ár.
Jólaball
Í dag var haldið jólaball á Höfða fyrir íbúa, starfsmenn og afkomendur. Höfðasalurinn var troðfullur af gestum, sá yngsti eins árs, sá elsti á tíunda áratugnum, og skemmtu sér allir konunglega.
Tveir jólasveinar komu í heimsókn og færðu börnunum poka með góðgæti. Bjórbandið spilaði gömlu góðu jólalögin og gestirnir dönsuðu kringum jólatréð.
Að balli loknu þáðu gestir veitingar í boði Höfða.
Helgihald um hátíðarnar
Í morgun var Ragnheiður Guðmundsdóttir djákni með helgistund í Höfðasal þar sem börn hennar og barnabörn sungu jólasálma og léku undir, en það er árvisst að afkomendur djáknans annast tónlistarflutning í helgistund á aðfangadag.
Á annan í jólum verður hátíðarguðsþjónusta kl. 12,45 þar sem sr. Eðvarð Ingólfsson predikar og kór Akraneskirkju syngur við undirleik Sveins Arnars Sæmundssonar.
Á gamlársdag verður svo helgistund djákna kl. 11,30, en þar mun kór Saurbæjarkirkju á Hvalfjarðarströnd syngja.
Óskum öllum landsmönnum gleðilegrar jólahátíðar.
Tónleikar
Mikið tónlistarlíf hefur verið á Höfða á aðventunni. Nemendur úr Tónlistarskóla Akraness héltu tónleika í Höfðasala í síðustu viku. Kór eldri borgara var með tónleika sl. þriðjudag og seinnipartinn í gær var Grundartangakórinn með tónleika í Höfðasal.
Allir þessir viðburðir voru vel sóttir og almenn ánægja með þá.
Aðventan gengur í garð
Síðastliðinn föstudag var hið árlega jólahlaðborð Höfða haldið og komu fjölmargir aðstandendur og borðuðu með sínu fólki. Í framhaldi af jólahlaðborðinu var hin síungi Þorvaldur Halldórsson með tónleika fyrir Höfðafólk sem endaði með dansi. Helgin endaði svo með aðventustund á sunnudag sem var í umsjón Séra Eðvarðs Ingólfssonar. Allir þessir viðburðir voru vel sóttir og almenn ánægja með þá.
Ingibjörg Pálmadóttir heimsækir Höfða
Ingibjörg Pálmadóttir fyrrverandi heilbrigðisráðherra og núverandi formaður Hjálparstarfs kirkjunnar heimsótti Höfða í gær og rabbaði við Höfðafólk um ferð sína til Afríku fyrr árinu á vegum hjálparstarfsins í fullum Höfðasal. Var gerður góður rómur að spjalli Ingibjargar sem fór á kostum að vanda með léttleika sínum.