Í gær var haldið jólaball á Höfða fyrir íbúa, starfsmenn og afkomendur. Hátt í 300 manns á aldrinum tveggja til hundrað og tveggja ára mættu á ballið og skemmtu sér konunglega. Andrea Guðjónsdóttir söng jólalögin við undirleik Bjórbandsins og tveir jólasveinar komu í heimsókn og færðu börnunum gjafir. Að balli loknu þáðu gestir veitingar í boði Höfða.
Þetta er fjölmennasta jólaball sem haldið hefur verið á Höfða og kom sér vel að gott pláss er í nýja Höfðasalnum.
Dansað kringum jólatréð.
Bjórbandið og Andrea.
Dönsum við í kringum…..
Vel var mætt á jólaballið.
Sitjandi eru Björn Sigurbjörnsson, Guðrún Jónsdóttir og Guðný Þorvaldsdóttir. Standandi þeim að baki er Helga Jónsdóttir.
Sigríður Guðmundsdóttir mætti á jólaballið tæplega 102ja ára gömul.
Jólastemmning.
Jólasveinarnir koma í hús.
Jólasveinarnir náðu til gesta á öllum aldri. Lengst til vinstri er Hulda Ragnarsdóttir.
Jólasveinarnir ræða við ungviðið.
Ungviðið fylgist með af áhuga.
Sungið af hjartans list. Fyrir miðri mynd er Ragnheiður Guðmundsdóttir.
Gjöfum deilt úr pokum jólasveinanna.
Andrea söngkona stjórnar ballinu.
Frammi á gangi voru veitingar í boði. Sitjandi við borðsendann er Erna Kristjánsdóttir og við hlið hennar Þórunn Baldursdóttir.
Kristín Pálína Magnúsdóttir og Guðný Aðalgeirsdóttir nutu sín vel með unga fólkinu.
Kíkt í nammipokann sem jólasveinninn gaf.
Frá vinstri: Guðjón Guðmundsson, Árni Aðalsteinsson og Kristín Magnúsdóttir.