Hinu árlega 3ja daga Boccia móti Höfða lauk í gær. Keppnin var að vanda jöfn og spennandi. 9 lið tóku þátt í mótinu.
Liðin voru þannig skipuð:
FOLAR: Björn Gústafsson, Hákon Björnsson, Eygló Halldórsdóttir
FÁLKAR: Jón Einarsson, Guðbjörg Pétursdóttir, Guðný Þorvaldsdóttir
RÚSÍNUR: Sigurður Halldórsson, Vigfús Sigurðsson, Lúðvík Björnsson
GARPAR: Sigurjón Jónsson, Svava Símonardóttir, Gunnar Guðjónsson
SÓLIR: Valgerður Einarsdóttir, Auður Elíasdóttir, Gunnvör Björnsdóttir
SKÝIN: Guðrún Adolfsdóttir, Anna M.Jónsdóttir, Sjöfn Jóhannesdóttir
HRÚTAR: Skarphéðinn Árnason, Tómas Sigurðsson, Bjarney Hagalínsdóttir
STRÁIN: Jóhannes Halldórsson, Grétar Jónsson, Rakel Jónsdóttir
ERNIR: Magnús Guðmundsson, Bjarni Guðmundsson, Lára Arnfinnsdóttir
Í þriggja liða úrslitum kepptu Fálkar, Rúnínur og Skýin. Þá kom Þuríður Jónsdóttir inn í lið Fálkanna í forföllum Guðnýjar og Svava Símonardóttir í lið Skýjanna í forföllum Önnu.
Úrslit urðu þau að SKÝIN sigruðu, ÚLFAR lentu í 2.sæti og FÁLKAR í 3.sæti.
Edda Guðmundsdóttir og Margrét A.Guðmundsdóttir voru dómarar og stjórnuðu mótinu af röggsemi og í léttum dúr. Mikill fjöldi áhorfenda var á öllum leikjunum.
Verðlaunaafhending fór fram í síðdegiskaffi að móti loknu.