Síðastliðinn föstudag var hið árlega jólahlaðborð Höfða haldið og komu fjölmargir aðstandendur og borðuðu með sínu fólki. Í framhaldi af jólahlaðborðinu var hin síungi Þorvaldur Halldórsson með tónleika fyrir Höfðafólk sem endaði með dansi. Helgin endaði svo með aðventustund á sunnudag sem var í umsjón Séra Eðvarðs Ingólfssonar. Allir þessir viðburðir voru vel sóttir og almenn ánægja með þá.
