Nemendur úr Tónlistarskóla Akraness héltu tónleika í Höfðasala þann 10.október sl.
Höfðafólk fjölmennti á tónleikana og þakkaði flytendum með lófataki.
Fyrirhugað er að nemendur úr skólanum komi mánaðarlega í heimsókn og haldi tónleika fyrir heimilisfólk. Munu tónleikar vera annan fimmtudag í mánuði kl. 14.00 og eru aðstandendur velkomnir að koma og njóta þeirra með sínu fólki.