Nýr starfsmannafatnaður hefur verið tekin í notkun á Höfða. Gamli starfsmannafatnaðurinn var kominn vel til ára sinna og úr sér genginn. Almenn ánægja er með nýja fatnaðinn sem bæði er þægilegur og litríkur.
Mánaðarskipt færslusafn fyrir: júlí 2014
Sumarferð
Hin árlega sumarferð Höfðafólks var farin í gær. 60 manns tóku þátt í ferðinni, íbúar Höfða og dagdeildarfólk ásamt nokkrum starfsmönnum.
Lagt var af stað kl. 13 og ekið um Hvalfjörðinn undir leiðsögn Arnheiðar Hjörleifsdóttur frá Bjarteyjarsandi sem fræddi hópinn um sögu Hvalfjarðar. Hernámssetrið að Hlöðum var heimsótt og skoðað ásamt því sem boðið var upp á kaffihlaðborð inn í safninu sjálfu.
Að þessu loknu var ekið sem leið lá til Akraness með viðkomu í Melahverfinu. Heim var svo komið kl. 17.30.
Írskir dagar á Höfða
Í upphafi Írskra daga á Akranesi komu íbúar Höfða og dagdeildarfólk saman í Höfðasal og skemmtu sér. Boðið var upp á léttar veitingar. Svavar Knútur skemmti fólki með söng sínum og stóð fyrir fjöldasöng.
Þá var heimilið skreytt með írskum fánum, blöðrum o.fl. Írska stemmningin sem ríkir á Akranesi þessa helgi er því ekki síður á Höfða en annars staðar í bænum.