Allmargir íbúar Höfða og dagdeildarfólk tóku þátt í laufabrauðsskurði í dag. Auðséð var á handbragðinu að flestir voru þaulvanir þessari list. Kaffi og konfekt var á borðum og létt yfir fólki við skurðinn.
Allmargir íbúar Höfða og dagdeildarfólk tóku þátt í laufabrauðsskurði í dag. Auðséð var á handbragðinu að flestir voru þaulvanir þessari list. Kaffi og konfekt var á borðum og létt yfir fólki við skurðinn.
Starfsmenn og íbúar áttu notalega stund í morgunkaffi á 3. hæð þegar starfsmaður kom með smákökur, brauð og konfekt til að smakka á.
S.l. laugardag hélt kór gamalla fóstbræðra söngskemmtun á Höfða. Kórstjóri er Árni Harðarson.Mjög góð aðsókn var að þessari söngskemmtun og undirtektir góðar.
Meðfylgjandi mynd tók Helgi Daníelsson.
Þóra Grímsdóttir sagnaþulur var með sögustund á Höfða í dag. 40 – 50 manns sóttu sögustundina og var góður rómur var gerður að flutningi Þóru.
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra heimsótti Höfða í dag. Í fylgd með honum var Árni Snæbjörnsson aðstoðarmaður ráðherra.
Ráðherra heilsaði upp á íbúa og starfsmenn, skoðaði nýafstaðnar framkvæmdir við Höfða og ræddi við framkvæmdastjóra um stöðu heimilisins.
Mikil aðsókn var að Vökudögum á Höfða um helgina. Um 120 manns komu á föstudag og 140 manns á laugardag. Var almenn ánægja með þau atriði sem þar var boðið upp á, en þau voru kynnt hér á heimasíðunni 26.október.