Frambjóðendur Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs heimsóttu Höfða í gær. Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir, Björg Gunnarsdóttir og Rún Halldórsdóttir ræddu við íbúa og starfsmenn og kynntu stefnumál flokksins í komandi alþingiskosningum.
Mánaðarskipt færslusafn fyrir: apríl 2007
Framboðskynning Sjálfstæðisflokksins á Höfða
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins heimsóttu Höfða í dag. Einar Kristinn Guðfinnsson og Herdís Þórðardóttir kynntu sér rekstur Höfða, ræddu við íbúa og starfsmenn og kynntu stefnumál Sjálfstæðisflokksins í þingkosningunum 12.maí n.k.
Hestamenn í heimsókn
Félagar í Hestamannafélaginu Dreyra komu í árlega heimsókn sína á sumardaginn fyrsta og færðu heimilisfólki blóm. Sigurður Halldórsson tók við blómunum fyrir hönd heimamanna.
Bjarni í leyfi
Bjarni Þór Ólafsson bryti hefur fengið leyfi frá störfum í 8 mánuði.
Svandís Stefánsdóttir verður forstöðumaður mötuneytis á meðan.