Íbúar Höfða eru í sérstökum áhættuhóp tengt því að veikjast alvarlega af Kórónaveirunni. Við viljum því biðja þá sem eru með kvefeinkenni, flensulík einkenni eða hafa ferðast nýlega til skilgreindra áhættusvæða samkvæmt upplýsingum á vef Landlæknis að gæta varúðar og koma ekki í heimsóknir á Höfða.
Mikilvægt er að þeir sem eru frískir, hafa ekki verið á skilgreindum áhættusvæðum og hafa því ekki ástæðu til að ætla að þeir hafi smitasta af veirunni hafi eftirfarandi í huga:
- Handþvottur er mikilvægasta ráðið til að forðast smit og einnig er mikilvægt að nota handspritt. Hafið þetta alltaf í huga þegar komið er inn á Höfða.
- Forðist alla líkamlega snertingu eins og hægt er svo sem handabönd, faðmlög og kossa við íbúa.
- Forðist að koma við snertifleti í almennum rýmum svo sem handriði og hurðarhúna.
Við bendum ykkur á að kynna ykkur leiðbeiningar á vef Landlæknisembættisins https://www.landlaeknir.is/ því staða mála og leiðbeiningar þeim tengdar geta breyst dag frá degi.
Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri
Ólína Ingibjörg Gunnarsdóttir hjúkrunarforstjóri