Í dag fagnar Stefán Bjarnason fyrrum yfirlögregluþjónn á Akranesi og nú íbúi Höfða 100 ára afmæli sínu. Í tilefni dagsins heimsóttu Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri og Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri Höfða Stefán og færðu honum blóm.
Fyrr um morguninn höfðu félagar Stefáns í leikfimishópi á Höfða sungið honum afmælissönginn.
Stefán mun fagna afmælisdeginum með fjölskyldu sinni og vinum.
Íbúar og starfsfólk Höfða óska Stefáni innilega til hamingju með daginn.