Skjótt skipast veður í lofti og eins og allir hafa
orðið varir við. Í ljósi allra þessara nýju smita tengt breska afbrigðinu af Covid
þá verðum við að herða á heimsóknartakmörkunum.
Nýjar takmarkanir gilda a.m.k. næstu þrjár vikur.
Að gefnu tilefni viljum við minna aðstandendur á að
halda sig heima finni þeir fyrir minnstu einkennum sem gætu bent til COVID-19
smits og fara í sýnatöku. Að sjálfsögðu skal halda sig heima
ef þið eruð í sóttkví eða einangrun.
Heimsóknartakmarkanir eru eftirfarandi og breytingar
eru feitletraðar:
Heimilið verður opið fyrir heimsóknir á milli 13:00-17:00 alla daga
vikunnar.
Einungis tveir gestir mega koma í heimsókn í einu.
Börnum yngri en 18 ára er ekki heimilt að koma í heimsókn.
Ekki verður um að ræða tímamörk á heimsóknum innan heimsóknartímans.
Heimsóknir fara fram í vistarverum íbúa, ekki má staldra við í
sameiginlegum rýmum heimilisins.
Allir gestir þurfa að koma með andlitsgrímu (maska).
Gestir skulu virða 2 metra regluna gagnvart öðrum íbúum og
starfsfólki.
Íbúum er heimilt að fara í bíltúr og í heimsókn til ættingja. Það eru vinsamleg tilmæli að halda fjölda
annarra gesta í slíkri heimsókn í lágmarki.
Þjónustuþegar í dagdvöl og heimilisfólk má hittast.
Þjónusta við aðra en íbúa Höfða og þjónustuþega dagdvalar verður ekki heimil
í sjúkraþjálfun, hárgreiðslu og fótsnyrtingu.
Kostgangarar geta komið í hádegismat á
Höfða í gegnum aðalinngang.
Sem fyrr er mikilvægt að hafa í huga að gestir mega
ekki koma í heimsókn ef þeir:
eru í sóttkví.
eru í einangrun (einnig meðan beðið er
niðurstöðu úr sýnatöku).
hafa dvalið erlendis og ekki eru liðnir
14 dagar frá heimkomu.
hafa verið í einangrun vegna COVID-19
smits og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift
eru með einkenni (kvef, hósta, hita,
höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl.).
Núverandi íbúar Höfða hafa verið full bólusettir gegn
COVID-19 ásamt þjónustuþegum í dagdvöl og starfsmenn hafa fengið fyrri
bólusetningu og því tímabært að rýmka ennfrekar þær takmarkanir sem hafa verið
á heimsóknum hjá okkur.
Við þurfum þó áfram að fara varlega og gæta hvers
annars.
Frá og með 15. mars gildir eftirfarandi:
Heimilið verður opið fyrir heimsóknir á milli 13:00-20:00 alla daga vikunnar.
Hámarksfjöldi gesta í einu eru 4 einstaklingar.
Ekki verður um að ræða tímamörk á heimsóknum innan heimsóknartímans.
Heimsóknir fara fram í vistarverum íbúa, ekki má staldra við í sameiginlegum rýmum heimilisins.
Allir gestir þurfa að koma með andlitsgrímu (maska).
Gestir skulu virða 2 metra regluna gagnvart öðrum íbúum og starfsfólki.
Íbúum er heimilt að fara í bíltúr og í heimsókn til ættingja. Það eru vinsamleg tilmæli að halda fjölda annarra gesta í slíkri heimsókn í lágmarki.
Þjónustuþegar í dagdvöl og heimilisfólk má hittast.
Öll hólfaskipting íbúa, þjónustuþega dagdvalar og starfsmanna fellur niður.
Iðjuþjálfun, sjúkraþjálfun og önnur þjálfun fer í fyrra horf hjá íbúum og dagdvalarþegum Höfða.
Þjónusta við aðra en íbúa Höfða og þjónustuþega dagdvalar verður heimil í sjúkraþjálfun, hárgreiðslu og fótsnyrtingu með aðskilnaði frá íbúum heimilisins.
Kostgangarar geta komið í hádegismat á Höfða í gegnum aðalinngang.
Sem fyrr er mikilvægt að hafa í huga að gestir mega
ekki koma í heimsókn ef þeir:
eru í sóttkví.
eru í einangrun (einnig meðan beðið er
niðurstöðu úr sýnatöku).
hafa dvalið erlendis og ekki eru liðnir
14 dagar frá heimkomu.
hafa verið í einangrun vegna COVID-19
smits og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift
eru með einkenni (kvef, hósta, hita,
höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl.).
Við bjóðum gesti velkomna og hlökkum til að opna
heimilið að nýju en biðjum þá um leið að virða þær fáu takmarkanir sem eftir
eru.
Allir núverandi íbúar Höfða hafa verið full bólusettir
gegn COVID-19 og því tímabært að rýmka þær takmarkanir sem hafa verið á heimsóknum
hjá okkur.
Hafa verður í huga að starfsmenn hafa ekki verið
bólusettir og að nýir íbúar eru að öllum líkindum ekki búnir að fá boð um
bólusetningu. Einnig er vert að geta þess að bólusetning veitir ekki 100% vörn
gegn COVID-19.
Það hefur áhrif á afléttingu takmarkana ásamt
samkomutakmörkunum sem eru úti í samfélaginu hverju sinni. Mikilvægt er að vera
á verði vegna hinna ýmsu afbrigða veirunnar sem skjóta upp kollinum og ekki
ljóst hvaða áhrif bólusetning hefur á.
Við þurfum því áfram að fara varlega og gæta hvers
annars.
Frá og með 2. febrúar 2021:
Heimilið verður opið fyrir heimsóknir á milli 14:00-17:00 alla daga vikunnar.
Ekki verður um að ræða tímamörk á heimsóknum innan heimsóknartímans.
Heimsóknir fara fram í vistarverum íbúans.
Að öllu jöfnu mæti aðeins tveir gestir í heimsókn til íbúa á hverjum tíma (undantekningar t.d. ef íbúi er á lífslokameðferð eru gerðar í samráði við stjórnanda heimilis). Yfirmaður getur veitt undanþágu ef:
íbúi er á lífslokameðferð
íbúi veikist skyndilega
um er að ræða neyðartilfelli
hann metur það svo að nauðsynlegt sé að rjúfa þessa reglu.
Gestur notar viðurkennda grímu að heiman.
Gestir eru beðnir að gæta að 2ja metra reglunni og forðast beina snertingu við íbúa og starfsmenn.
Gestir eru beðnir um að spritta hendur sínar í upphafi heimsóknar og fyrir og eftir snertingu við sameiginlega fleti, s.s. lyftuhnappa, hurðarhúna, handrið o.fl.
Gestir fara stystu leið beint inn á herbergi íbúans og stystu leið út.
Óheimilt er að dvelja í sameiginlegum rýmum heimilisins.
Heimilt er að fara í bíltúra með íbúa og/eða heimsóknir. Íbúar fara að sjálfsögðu eftir almennum sóttvörnum sem gilda í samfélaginu og eru auk þess beðnir um að gæta sérstaklega vel að handhreinsun við komuna til baka á heimilið vegna möguleika á snertismiti og eru ættingjar beðnir um að aðstoða ástvini sína.
Óskað er eftir því að gestir og ástvinir fari varlega úti í samfélaginu og fara í sýnatöku við minnstu einkenni.
Sem fyrr er mikilvægt að hafa í huga að gestir mega
ekki koma í heimsókn ef þeir:
eru í sóttkví.
eru í einangrun (einnig meðan beðið er niðurstöðu úr sýnatöku).
hafa dvalið erlendis og ekki liggja fyrir neikvæðar niðurstöður úr tveimur skimunum.
hafa verið í einangrun vegna COVID-19 smits og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift
eru með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl.).
Starfsmenn munu áfram bera grímu við vinnu sína og
þurfa að gæta sérstakrar varúðar sín á milli. Áfram verða ákveðin
sóttvarnarhólf og gætt verður að handhreinsun og sótthreinsun á sameiginlegum
snertiflötum líkt og gert hefur verið allan faraldurinn.
Aðstandendur eru hvattir til að hlaða niður
smitrakningarappi Almannavarna.
Aðstandendur eru einnig hvattir til að þiggja
bólusetningu gegn COVID-19 þegar þeim býðst hún.
Nú á ellefta tímanum hófst bólusetning á íbúum Höfða vegna COVID-19
Annar til að vera bólusettur var Haukur Ármannsson. Kristín Guðmundsdóttir hjúkrunardeildastjóri sá um bólusetninguna. Til hægri Tryggvi Björnsson tilbúinn að fá sína bólusetningu.
Jóhannes Bergsveinsson yfirlæknir heilsugæslunnar ásamt Ragnheiði Björnsdóttur yfirhjúkrunarfræðingi og Rósu Mýrdal komu með bóluefnið á Höfða og hafa yfirumsjón með bólsetningunni.
Við biðlum til ættingja að leggja eigin
hagsmuni til hliðar fyrir hagsmuni heildarinnar.
Jólahátíðin er mikil fjölskylduhátíð og á
sérstakan sess í hjörtum flestra. Við á Höfða höfum í gegnum árin litið til
jólahátíðarinnar með mikilli gleði og tilhlökkun og fundist mikilvægt að gera
allt sem við getum til að aðfangadagskvöld og jóladagarnir verði sem
hátíðlegastir fyrir íbúa okkar, aðstandendur og starfsfólk.
Þetta árið er ljóst að jólahátíðin verður ekki
með hefðbundnu sniði. Covid hefur haft áhrif á líf okkar allra, regluleg
samvera hefur farið úr skorðum og miklar hömlur hafa verið settar á öll
samskipti. Á Höfða hafa gilt ákveðnar heimsóknartakmarkanir frá byrjun
faraldursins, mismiklar hverju sinni. Ávallt hefur markmiðið verið að verja
íbúana okkar og reyna að hindra að smit berist inn á heimilið. Í ljósi aðstæðna
og þess að samvera verður ekki á sama hátt og fyrri jólahátíðir munum við
leggja okkur enn frekar fram um að gera allt sem í okkar valdi stendur til að
jólahátíðin verði sem hátíðlegust og notalegust fyrir íbúa okkar.
Sóttvarnaryfirvöld hafa lagt ríka áherslu á að
við „höldum þetta út“ og búum til okkar eigin „jólakúlu/jólavini“ þar sem
einstaklingar velji sér þá sem þeim finnst mikilvægast að hafa samskipti við um
hátíðarnar. Þetta þurfum við á Höfða einnig að hafa í huga. Því miður verður því
ekki hægt að bjóða maka eða öðrum ættingjum að borða með íbúanum á
aðfangadagskvöld eða hina jóladagana. Það sama á við um gamlársdag og nýársdag.
Við
mælum eindregið gegn því að íbúi fari út af heimilinu til ættingja sinna um
hátíðarnar. Ef íbúi fer út af heimilinu
þarf hann að fara í sóttkví í 5 daga með ættingja á hans heimili. Þeir aðilar sem eru saman í sóttkví þurfa að
fara í sýnatöku í upphafi sóttkvíar og svo aftur að 5 dögum liðnum áður en íbúa
er veitt heimild til að koma aftur inn á Höfða.
Athugið að eftirfarandi heimsóknareglur munu
alltaf þurfa að taka mið af stöðu faraldursins í samfélaginu og gætu því breyst
fram að jólum.
Við sendum ykkur öllum okkar bestu óskir um
gleðilega jólahátíð og horfum með bjartsýni til nýs árs með von um fleiri
samverustundir á nýju ári.
Við þökkum kærlega fyrir þann skilning og
hlýhug sem íbúar og aðstandendur hafa hingað til sýnt í orði og verki.
Með kærri kveðju,
Stjórnendur Höfða
Heimsóknarreglur um jól:
Stjórnendur Höfða hafa ákveðið að rýmka aðeins heimsóknareglurnar um jólahátíðina ef ástand í samfélaginu leyfir.
Mikilvægt
er að hafa í huga að njóta samveru, hátíðleika og væntumþykju þótt hátíðarkvöldverður
á aðfangadagskvöld sé ekki snæddur saman. Samveran sjálf er svo mikilvæg. Þið getið skapað ykkar eigin hátíðar- og
jólastund með ættingja ykkar. Tökum sem dæmi að hægt er að sitja saman inn á
herbergi íbúa og opna jólapakka, hlusta á jólatónlist, gæða sér á góðgæti sem
ættingjar koma með og njóta hátíðleikans og þess að vera saman:
Eftir hádegi á aðfangadag verður heimilið opið fyrir heimsóknir milli kl 14:00-17:00.
Eftir að íbúar og starfsfólk hafa snætt hátíðarkvöldverðinn kl 18 á aðfangadag er heimilið opið fyrir heimsóknir milli kl 19:30-22:00.
Njótið rafrænna samskipta. Sá sem kemur í heimsókn getur tengst öðrum ættingjum í gegnum netið. Þannig er hægt að skapa hátíðlega samverustund með fleirum en heimsóknargestinum sjálfum.
Tveir
gestir á dag hafa leyfi til
að heimsækja hvern íbúa aðfangadag (24. des), jóladag (25. des) og annan í
jólum (26. des).
Rýmri
lengd á heimsóknartíma verður þessa 3 daga og verður milli kl. 14:00-17:00 og
frá 19:30-22:00
Börn
undir 18 ára hafa leyfi til að koma í heimsókn, en
þá teljast þau annar af þessum tveimur gestum.
Munið að
spritta hendur við komu og áður en þið yfirgefið heimilið.
Allir
gestir þurfa að koma með andlitsgrímu (maska). Óheimilt er að koma með taugrímu.
Vinsamlega hafið grímuna á ykkur allan tímann
á meðan heimsókn stendur.
Vinsamlega
farið beint inn á herbergi íbúa, ekki stoppa og spjalla á leiðinni. Ef íbúi er
ekki inni á herbergi þá biðjið þið starfsfólk að sækja hann, ekki gera það
sjálf.
Virðið
2ja metra regluna og forðist snertingu við íbúa.
Heimilt
er að fara með íbúa út í göngutúr í nærumhverfi á meðan heimsókn stendur.
Ekki er
heimilt að fara í bíltúr eða heimsókn með heimsóknargesti sínum.
Undanþága frá þessu er aðeins veitt við mikil
veikindi íbúa og þarf leyfi frá vaktstjóra deildar.
Panta þarf tíma yfir jólin hjá Sillu
húsmóður í síma 856-4303 milli kl. 11 og 12 í vikunni fyrir jól. Skráningu
lýkur kl. 12. þann 23.12.2020
Heimsóknarreglur um áramót:
Stjórnendur Höfða hafa ákveðið að rýmka aðeins heimsóknareglurnar um áramótin ef ástand í samfélaginu leyfir.
Mikilvægt
er að hafa í huga að njóta samveru, hátíðleika og væntumþykju þótt
áramótakvöldverður á gamlárskvöld sé ekki snæddur saman. Samveran sjálf er svo
mikilvæg. Þið getið skapað ykkar eigin
hátíðar- og áramótastund með ættingja ykkar.
Eftir hádegi á gamlársdag verður heimilið opið fyrir heimsóknir milli kl 14:00-17:00
Eftir að íbúar og starfsfólk hafa snætt áramótakvöldverð kl 18 á gamlársdag eru heimilið opið fyrir heimsóknir milli kl 19:30-22:00.
Njótið rafrænna samskipta. Sá sem kemur í heimsókn getur tengst öðrum ættingjum í gegnum netið. Þannig er hægt að skapa hátíðlega samverustund með fleirum en heimsóknargestinum sjálfum.
Tveir
gestir á dag hafa leyfi til
að heimsækja hvern íbúa gamlársdag (31. des) og nýársdag (1. jan)
Rýmri
lengd á heimsóknartíma verður þessa 2 daga og verður milli kl. 14:00-17:00 og
frá 19:30-22:00
Börn
undir 18 ára hafa leyfi til að koma í heimsókn, en
þá teljast þau annar af þessum tveimur gestum.
Munið að
spritta hendur við komu og áður en þið yfirgefið heimilið.
Allir
gestir þurfa að koma með andlitsgrímu (maska). Óheimilt er að koma með taugrímu.
Vinsamlega hafið grímuna á ykkur allan tímann
á meðan heimsókn stendur.
Vinsamlega
farið beint inn á herbergi íbúa, ekki stoppa og spjalla á leiðinni. Ef íbúi er
ekki inni á herbergi þá biðjið þið starfsfólk að sækja hann, ekki gera það
sjálf.
Virðið
2ja metra regluna og forðist snertingu við íbúa.
Heimilt
er að fara með íbúa út í göngutúr í nærumhverfi á meðan heimsókn stendur.
Ekki er
heimilt að fara í bíltúr eða heimsókn með heimsóknargesti sínum.
Undanþága frá þessu er aðeins veitt við mikil
veikindi íbúa og þarf leyfi frá vaktstjóra deildar.
Vinsamlega EKKI koma inn á Höfða ef:
Panta þarf tíma yfir áramótin hjá Sillu húsmóður í síma 856-4303 milli kl. 11 og 12 í vikunni milli jóla og nýárs. Skráningu lýkur kl. 12. þann 30.12.2020.
Núverandi heimsóknarreglur gilda áfram um aðra daga en hér að ofan greinir.
Þó að smitum á Akranesi hafi
fækkað verulegu þá hefur verið tekin ákvörðun um að rýmka heimsóknarreglur
einungis lítillega, þar sem smitum í landinu er aftur farið að fjölga. Breytingar
gildi frá og með mánudeginum 30. nóvember 2020.
Þó mikið hafi áunnist í
baráttunni gegn COVID-19 erum við ekki komin í höfn og sýna þarf ítrustu
varkárni og virða sóttvarnaráðstafanir í heimsóknum. Einnig er nauðsynlegt að takmarka þann
fjölda sem kemur inn á heimilið á hverjum tíma.
Heimild til heimsókna verður tvisvar í viku fyrir hvern íbúa, ein
klukkustund í senn milli kl: 14 og 16 alla daga vikunnar. Mælst er til að sami
aðili komi í heimsókn en er ekki skilyrði. Sá hin sami þarf að vera nánast í
sjálfskipaðri sóttkví og passa sig sérstaklega. Húsið verður áfram læst og
lokað fyrir almennri umferð.
Allir gestir koma með sína eigin andlitsgrímu (maska). Skilyrði fyrir heimsókn.
Undanþága er aðeins veitt við mikil veikindi íbúa og í samráði við vaktstjóra og deildarstjóra deildar.
Ekki er heimilt að íbúi fari út í bíltúr eða í heimsókn með heimsóknargesti sínum.
Vinsamlega kynnið ykkur vel eftirfarandi heimsóknarreglur:
Ekki panta heimsóknartíma og alls ekki koma í heimsókn ef:
Þú ert í sóttkví
Þú ert í einangrun eða að bíða eftir niðurstöðu úr sýnatöku
Þú hefur verið í einangrun og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift.
Heimsóknartími er frá klukkan 14 til 16 alla daga. Panta þarf tíma símleiðis hjá Sillu húsmóður í síma 856-4303 milli kl 11 og 12 virka daga. Tímarnir sem í boði eru eftirfarandi:
Kl.: 14:00
/ 14:15 / 14:30 / 14:45
Við
hvetjum ykkur til að hlaða niður í símana ykkar smitrakningnarappi almannavarna.
Starfsmaður
mun taka á móti ykkur við aðalinngang.
Munið að þvo og/eða spritta hendur áður en heimsókn hefst og að henni
lokinni. Ekki koma við neitt í almannarýmum, farið beint inn til íbúa og beint
út aftur. Muna eigin andlitsgrímu
(maska).
Athugið
að heimsóknin er til ættingja þíns, staldrið ekki við til að ræða við aðra
íbúa, ættingja eða starfsfólk. Ef þið óskið frekari upplýsinga um heilsufar
aðstandenda ykkar þá er betra að hringja til að fá þær upplýsingar.
Virðið
2ja metra regluna og forðist snertingu við íbúa eins og hægt er.
Athugið
að starfsfólk á deildum tekur ekki á móti tímapöntunum.
Ekki er
heimilt að koma í heimsókn utan heimsóknartíma og ávallt þarf að panta tíma
fyrirfram.
Heimsóknir verða leyfðar inn á Höfða
frá og með 18. nóvember næstkomandi með ákveðnum takmörkunum. Heimild til heimsókna er einu sinni í viku
fyrir hvern íbúa, ein klukkustund í senn.
Þó mikið hafi áunnist í baráttunni gegn COVID-19 erum við ekki komin
í höfn og sýna þarf ítrustu varkárni og virða sóttvarnaráðstafanir í
heimsóknum. Einnig er nauðsynlegt að
takmarka þann fjölda sem kemur inn í heimilið á hverjum tíma.
Heimild til heimsókna
er einn gestur fyrir hvern íbúa, ein klukkustund í senn milli kl: 14 og 16. Sá
hinn sami þarf að vera nánast í sjálfskipaðri sóttkví og passa sig sérstaklega.
Allir gestir koma með sína eigin andlitsgrímu (maska). Skilyrði fyrir heimsókn.
Undanþága er aðeins veitt við mikil veikindi íbúa og í samráði við vaktstjóra og deildarstjóra deildar.
Ekki er heimilt að íbúi fari út í bíltúr eða í heimsókn með heimsóknargesti sínum.
Vinsamlega
kynnið ykkur vel eftirfarandi heimsóknarreglur:
Ekki panta heimsóknartíma og alls ekki koma í heimsókn ef:
Þú ert í sóttkví
Þú ert í einangrun eða að bíða eftir niðurstöðu úr sýnatöku
Þú hefur verið í einangrun og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift.
Heimsóknartími er frá klukkan 14 til 16 alla daga. Panta þarf tíma símleiðis hjá Sillu húsmóður í síma 856-4303 milli kl 11 og 12 virka daga. Tímarnir sem í boði eru eftirfarandi:
14:00 / 14:15 / 14:30 / 14:45
Við hvetjum ykkur til að hlaða niður í
símana ykkar smitrakningnarappi almannavarna
Starfsmaður mun taka á móti ykkur við aðalinngang. Munið að þvo og/eða spritta hendur áður en
heimsókn hefst og að henni lokinni. Ekki koma við neitt í almannarýmum, farið
beint inn til íbúa og beint út aftur. Muna eigin andlitsgrímu (maska).
Athugið að heimsóknin er til ættingja þíns,
staldrið ekki við til að ræða við aðra íbúa, ættingja eða starfsfólk. Ef þið
óskið frekari upplýsinga um heilsufar aðstandenda ykkar þá er betra að hringja
til að fá þær upplýsingar.
Virðið 2ja metra regluna og forðist
snertingu við íbúa eins og hægt er.
Athugið að starfsfólk á deildum tekur ekki
á móti tímapöntunum.
Ekki er heimilt að koma í heimsókn utan
heimsóknartíma og ávallt þarf að panta tíma fyrirfram.
Í ljósi stöðunnar á
smitum vegna COVID-19 á Akranesi og nágrenni, höfum við stjórnendur Höfða,
ákveðið að framlengja heimsóknarbanni á Höfða.
Við horfum til þess
að þessi ráðstöfun vari að óbreyttu a.m.k. til og með 17. nóvember nk.
Staðan verður
endurmetin eftir þörfum og hlutaðeigandi upplýstir um leið og einhver breyting
verður. Þessi ákvörðun er sem fyrr tekin
með hagsmuni íbúa á Höfða að leiðarljósi.
Eingöngu verða veittar undanþágur í tilfellum þar sem um alvarleg
veikindi er að ræða eða ef einstaklingur er kominn á lífslokameðferð.
Við þökkum kærlega fyrir þann skilning og hlýhug sem íbúar og
aðstandendur hafa hingað til sýnt í orði og verki.
Í ljósi stöðunnar á
smitum vegna COVID-19 á Akranesi og nágrenni, höfum við stjórnendur Höfða,
ákveðið að framlengja heimsóknarbanni á Höfða.
Við horfum til þess
að þessi ráðstöfun vari að óbreyttu a.m.k. til og með 2. nóvember nk.
Staðan verður
endurmetin eftir þörfum og hlutaðeigandi upplýstir um leið og einhver breyting
verður. Þessi ákvörðun er sem fyrr tekin
með hagsmuni íbúa á Höfða að leiðarljósi.
Eingöngu verða veittar undanþágur í tilfellum þar sem um alvarleg
veikindi er að ræða eða ef einstaklingur er kominn á lífslokameðferð.
Við þökkum kærlega fyrir þann skilning og hlýhug sem íbúar og
aðstandendur hafa hingað til sýnt í orði og verki.
Í ljósi stöðunnar á
smitum vegna COVID-19 á Akranesi og nágrenni, höfum við stjórnendur Höfða,
ákveðið að framlengja heimsóknarbanni á Höfða.
Við horfum til þess
að þessi ráðstöfun vari að óbreyttu a.m.k. til og með 26. október nk.