Í gær heimsóttu Höfða þeir Jens G. Jensson oddviti Íslensku þjóðfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi og Jóni Jónssyni frambjóðanda.
Þeir heilsuðu upp á íbúa og starfsfólk og kynnti stefnumál síns flokks í komandi þingkosningum.
Í gær heimsóttu Höfða þeir Jens G. Jensson oddviti Íslensku þjóðfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi og Jóni Jónssyni frambjóðanda.
Þeir heilsuðu upp á íbúa og starfsfólk og kynnti stefnumál síns flokks í komandi þingkosningum.
Hjólið sem kom nú í maí hefur aldeilis vakið lukku á Höfða og jákvæða athygli og umfjöllun.
Hjólatúrarnir ganga vel, búið er að halda þrú námskeið fyrir hjólara sem hafa aðallega verið aðstandendur, starfsmenn og nokkrir sjálfboðaliðar frá Rauða Krossinum. Á námskeiðinu er sagt frá hvernig þetta hjólaævintýri byrjaði , farið í gegnum helstu umgengisreglur og verðandi hjólarar fá að prófa hjólið. Síðan bóka hjólarar æfingatíma og geta svo fljótlega eftir það farið að hjóla með farþega.
Á daginn er farið út 2x á dag með íbúa eða dagdeildarfólk og hafa þeir hjólatúrar aðallega verið farnir af starfsmönnum sjúkra- og iðjuþjálfunar og annara deilda. Hjólarar geta panta hjólatíma hvenær sem er og viljum við gjarna fá fleiri hjólara í lið með okkur, sérstaklega aðstandendur. Kringum Höfða og í nánasta umhverfi eru góðir göngu- og hjólastígar en einnig erum við farin að fara lengri túra. Veðrið hefur einnig leikið við okkur, en ekkert mál er að fara í rigningu a.m.k. ekki fyrir farþegana sem eru vel varðir. Það er von okkar að hjólið eigi eftir að gefa okkur margar góðar stundir og skapa skemmtilegar minningar.
Þeir sem vilja gerast hjólarar eða fá upplýsingar um hjólaævintýrið hafið gjarnan samband við Lísu sjúkraþjálfara ( 4334314 / 8921257) eða Maríu iðjuþjálfa (8564316 / 8497606).
Davíð Oddsson forsetaframbjóðandi heimsótti Höfða í dag ásamt aðstoðarfólki og spjallaði við íbúa og starfsmenn.
Í gær var gengið í fjórða sinn kvennahlaup ÍSÍ frá Höfða, gengið var frá Höfða inn í Leyni og tilbaka. Þátttakendur voru um 40 og skapaðist mikil og góð stemming meðal þátttakanda. Eftir „hlaupið“ var boðið upp á léttar veitingar í Höfðasal um leið og allir þátttakendur fengu verðlaunapening. Veðrið lék við alla þó svo nokkuð væri kalt og var það samdóma álit allra að vel hafi tekist til.
Síðastliðinn fimmtudag fór fram formleg afhending á nýja hjólinu okkar á Höfða. Í febrúar sl. var hrundið af stað formlegri söfnun fyrir hjólinu. Skemmst er frá því að segja að eftir að söfnun hófst hafði Lionsklúbburinn Eðna samband og vildi gefa íbúum á Höfða hjólið. Auk framlags Lionsklúbbsins færði Slysavarnadeildin Líf bæði fjárframlag og hjólahjálma. Einnig safnaðist töluvert í söfnunarbauka á Höfða og að lokum safnaði Andrea Björnsdóttir töluverðum fjármunum í hjólasjóðinn.
Forvígismenn að söfnun og komu hjólsins á Höfða voru María Ásmundsdóttir iðjuþjálfi og Elísabet Ragnarsdóttir sjúkraþjálfari.
Með öllum þessum gjöfum safnaðist fyrir hjólinu töluvert umfram kaupverð þess sem notað verður í búnaðarkaup tengd hjólinu og viðhaldssjóð.
Við athöfnina afhenti Auður Líndal formaður Lionsklúbbsins Eðnu, Maríu Ásmundsdóttur iðjuþjálfa lykla af hjólinu. Við sama tilefni afhentu þær Hallfríður Jóna Jónsdóttir og Anna Kristjánsdóttir hjálma til notkunar á hjólinu ásamt fjárframlag frá Slysavarnadeildinni Líf.
Í ávarpi sínu við afhendinguna þakkaði Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri öllum gefendum fyrir höfðinglega gjöf.
Mikil gleði er meðal íbúa Höfða með nýja hjólið og skín bros úr andliti hvers þess sem sest hefur í hjólið og hlakkar öllum til að hjóla inn í sumarið á Höfða.
S.l. laugardag var haldinn vormarkaður á Höfða. Þar var meðal annars í boði úrval af brauði, kleinum, kökum, sultum, broddur, garðplöntum, smámunum o.fl. sem starfsmenn seldu til fjáröflunar fyrir væntanlega utanlandsferð.
Tveir íbúar, Ólöf Hjartardóttir og Anna Þorvarðardóttir, voru með stórskemmtilega sölubása þar sem boðið var upp á falleg gjafakort, skartgripi og prjónavörum, allt unnið af seljendum.
Í samkomusalnum var boðið upp á kaffi og vöfflur og ávaxtasafa fyrir börnin. Vormarkaðurinn var vel sóttur og mikil ánægja með hann.
Guðni Th. Jóhannesson forsetaframbjóðandi og eiginkona hans Eliza Reid heimsóttu Höfða á laugardaginn og spjölluðu við íbúa og starfsmenn.
Halla Tómasdóttir forsetaframbjóðandi heimsótti Höfða á mánudaginn ásamt aðstoðarfólki og spjallaði við íbúa og starfsmenn.