Í dag var gengið í þriðja sinn kvennahlaup ÍSÍ frá Höfða, gengið var frá Höfða inn í Leyni og tilbaka. Þátttakendur voru um 40 og skapaðist mikil og góð stemming meðal þátttakanda. Eftir „hlaupið“ var boðið upp á léttar veitingar í Höfðasal um leið og allir þátttakendur fengu verðlaunapening. Veðrið lék við alla þó svo nokkuð væri kalt og var það samdóma álit allra að vel hafi tekist til.