Fulltrúar Sambands borgfirskra kvenna komur færandi hendi til okkar á Höfða í gær.
Þær Valgerður Björnsdóttir formaður, Gerður K. Guðnadóttir gjaldkeri og Heiðrún Sveinbjörnsdóttir meðstjórnandi færðu Höfða að gjöf gjafabréf og er andvirði þess ætlað til kaupa á búnaði sem nýtist heimilisfólki á Höfða. Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri og Sigurlín Gunnarsdóttir húsmóðir veittu styrknum móttöku og þökkuðu fyrir höfðinglega gjöf sem mun nýtast vel á Höfða.