Í gær var gengið í fjórða sinn kvennahlaup ÍSÍ frá Höfða, gengið var frá Höfða inn í Leyni og tilbaka. Þátttakendur voru um 40 og skapaðist mikil og góð stemming meðal þátttakanda. Eftir „hlaupið“ var boðið upp á léttar veitingar í Höfðasal um leið og allir þátttakendur fengu verðlaunapening. Veðrið lék við alla þó svo nokkuð væri kalt og var það samdóma álit allra að vel hafi tekist til.
Allar færslur eftir Bjarni Þór Ólafsson
Afhending á hjóli
Síðastliðinn fimmtudag fór fram formleg afhending á nýja hjólinu okkar á Höfða. Í febrúar sl. var hrundið af stað formlegri söfnun fyrir hjólinu. Skemmst er frá því að segja að eftir að söfnun hófst hafði Lionsklúbburinn Eðna samband og vildi gefa íbúum á Höfða hjólið. Auk framlags Lionsklúbbsins færði Slysavarnadeildin Líf bæði fjárframlag og hjólahjálma. Einnig safnaðist töluvert í söfnunarbauka á Höfða og að lokum safnaði Andrea Björnsdóttir töluverðum fjármunum í hjólasjóðinn.
Forvígismenn að söfnun og komu hjólsins á Höfða voru María Ásmundsdóttir iðjuþjálfi og Elísabet Ragnarsdóttir sjúkraþjálfari.
Með öllum þessum gjöfum safnaðist fyrir hjólinu töluvert umfram kaupverð þess sem notað verður í búnaðarkaup tengd hjólinu og viðhaldssjóð.
Við athöfnina afhenti Auður Líndal formaður Lionsklúbbsins Eðnu, Maríu Ásmundsdóttur iðjuþjálfa lykla af hjólinu. Við sama tilefni afhentu þær Hallfríður Jóna Jónsdóttir og Anna Kristjánsdóttir hjálma til notkunar á hjólinu ásamt fjárframlag frá Slysavarnadeildinni Líf.
Í ávarpi sínu við afhendinguna þakkaði Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri öllum gefendum fyrir höfðinglega gjöf.
Mikil gleði er meðal íbúa Höfða með nýja hjólið og skín bros úr andliti hvers þess sem sest hefur í hjólið og hlakkar öllum til að hjóla inn í sumarið á Höfða.
Vormarkaður á Höfða
S.l. laugardag var haldinn vormarkaður á Höfða. Þar var meðal annars í boði úrval af brauði, kleinum, kökum, sultum, broddur, garðplöntum, smámunum o.fl. sem starfsmenn seldu til fjáröflunar fyrir væntanlega utanlandsferð.
Tveir íbúar, Ólöf Hjartardóttir og Anna Þorvarðardóttir, voru með stórskemmtilega sölubása þar sem boðið var upp á falleg gjafakort, skartgripi og prjónavörum, allt unnið af seljendum.
Í samkomusalnum var boðið upp á kaffi og vöfflur og ávaxtasafa fyrir börnin. Vormarkaðurinn var vel sóttur og mikil ánægja með hann.
Guðni Th. heimsækir Höfða
Guðni Th. Jóhannesson forsetaframbjóðandi og eiginkona hans Eliza Reid heimsóttu Höfða á laugardaginn og spjölluðu við íbúa og starfsmenn.
Halla heimsækir Höfða
Halla Tómasdóttir forsetaframbjóðandi heimsótti Höfða á mánudaginn ásamt aðstoðarfólki og spjallaði við íbúa og starfsmenn.
Hjólað óháð aldri
Hjólarar óskast
Nú fer að líða að því að við fáum hjólið okkar fína og þá vantar okkur sjálfboðaliða eða svokallaða hjólara til að hjóla með íbúana okkar. Hjólarar eru oftast úr röðum aðstandenda, starfsmanna og annarra velunnara og munu hjólarar fá kennslu á hjólið og læra hvernig umgangast á hjólið.
Sá sem gerist hjólari er vitaskuld í sjálfsvald sett hversu miklum tíma og hversu oft hann sinnir þessu verkefni. Þeir sem ætla aðeins að hjóla með sinn aðstandenda þurfa að gerast hjólarar til að læra umgengnisreglurnar.
Hugmyndin er að stofna lokaðan Facebook hóp fyrir hjólarana, fólk þarf að vita hvenær hjólið er laust og aðrar praktískar upplýsingar.
Allar góðar hugmyndir um hvernig við getum unnið að þessu verkefni saman vel þegnar.
Áhugasamir hafi samband við:
Lísu sjúkraþjálfara sími: 433 4314 sjukrathjalfari@dvalarheimili.is
Maríu iðjuþjálfa sími: 856 4316 idjuthjalfi@dvalarheimili.is
Sumardagurinn fyrsti
Á sumardaginn fyrsta var gestkvæmt á Höfða, dagurinn byrjaði á heimsókn félaga úr Hestmannafélaginu Dreyra á fákum sínum.
Karlakórinn Svanir hélt söngskemmtun undir stjórn Valgerðar Jónsdóttur sem jafnframt sá um undirleik ásamt Jóni Trausta Hervarssyni.
Í framhaldi af söngskemmtun var boðið upp á vöflukaffi í umsjón Höfðavina, félags vina og velunnara heimilisfólks á Höfða. Vöflukaffið heppnaðist vel sem og önnur atriði dagsins.
Á laugardaginn kom svo Þjóðdansafélagið Sporið í heimsókn til okkar og sýndi þjóðdansa fyrir heimilisfólk á Höfða. Skemmtunin var vel sótt og var almenn ánægja með hana.
Söngskemmtun
Sigurður Guðmundsson og Sigurður Ólafsson buðu upp á samsöng í Höfðasal í síðustu viku.
Góður rómur var gerður af framtaki þeirra vina og er beðið í eftirvæntingu eftir næsta samsöng.
Minningargjöf til Höfða
Í dag kom Jón Guðjónsson færandi hendi til okkar á Höfða.
Til minningar um eiginkonu sína Sigrúnu Níelsdóttur færði hann heimilinu veglega peningagjöf til kaupa á tæki eða búnaði fyrir starfsemi dagdeildar Höfða.
Við þetta tækifæri vildi Jón færa starfsfólki Höfða innilegar þakkir fyrir umönnun þá og alúð sem Sigrún naut í dagvistun Höfða og átti þátt í að létta henni síðustu æviár hennar.
Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri veitti gjöfinni viðtöku og þakkaði fyrir höfðinglega gjöf sem mun nýtast starfsemi dagdeildar vel.
Samið við sjúkraliða
Í nótt undirritaði samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga nýjan kjarasamning við Sjúkraliðafélag Íslands. Þar með hefur boðuðu verkfalli sjúkraliða verið afstýrt.
Því verður starfsemi á Höfða með eðlilegum hætti eftir helgi.