Ágætu íbúar, aðstandendur og aðrir gestir á Höfða.
Eftirfarandi reglur gilda varðandi heimsóknir frá og með 7. júní 2021 þangað til annað verður tilkynnt:
Heimsóknartakmarkanir eru eftirfarandi:
- Heimilið er opið fyrir heimsóknir á milli 13:00-20:00 alla daga vikunnar.
- Einungis tveir gestir mega koma í heimsókn í einu.
- Ekki verður um að ræða tímamörk á heimsóknum innan heimsóknartímans.
- Heimsóknir fara fram í vistarverum íbúa, ekki má staldra við í sameiginlegum rýmum heimilisins.
- Gestir þurfa ekki lengur að bera andlitsgrímu við komu inn á heimilið.
- Gestir skulu virða 2 metra regluna gagnvart öðrum íbúum og starfsfólki.
- Íbúum er heimilt að fara í bíltúr og í heimsókn til ættingja. Það eru vinsamleg tilmæli að halda fjölda annarra gesta í slíkri heimsókn í lágmarki.
- Þjónustuþegar í dagdvöl og heimilisfólk má hittast.
- Þjónusta við aðra en íbúa Höfða og þjónustuþega dagdvalar er heimil í sjúkraþjálfun, hárgreiðslu og fótsnyrtingu.
Sem fyrr er mikilvægt að hafa í huga að gestir mega ekki koma í heimsókn ef þeir:
- eru í sóttkví.
- eru í einangrun (einnig meðan beðið er niðurstöðu úr sýnatöku).
- hafa dvalið erlendis og ekki eru liðnir 14 dagar frá heimkomu. Þetta ákvæði gildir ekki ef um fullbólusetta eða þá sem hafa fengið COVID-19. Eru þeir velkomnir í heimsókn svo fremi sem þeir framvísa gildum vottorðum og gæti vel að handhreinsun.
- hafa verið í einangrun vegna COVID-19 smits og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift
- eru með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl.).
Kærar sumarkveðjur til ykkar allra,
Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri
Ólína Ingibjörg Gunnarsdóttir hjúkrunarforstjóri
Sigurlín Gunnarsdóttir húsmóðir.