Kæru íbúar, aðstandendur og aðrir gestir á Höfða
Í ljósi þess að smitum vegna COVID-19 hefur fækkar mikið höfum ákveðið að aflétta grímuskyldu að því undanskyldu að þeir sem eru óbólusettir þurfa áfram að bera grímu inn á heimilinu hvort sem um er að ræða starfsmenn, ættingja heimilismanna eða aðra sem inn á heimilið eiga erindi.
Eftirfarandi reglur gilda áfram:
- Heimilið er opið fyrir heimsóknir á milli 13:00-21:00 alla daga vikunnar.
- Gestir spritti hendur þegar gengið er inn á heimilið.
- Gestir fari til herbergis íbúa og aftur að útidyrum að heimsókn lokinni, ekki staldra við í sameiginlegum rýmum heimilisins.
- Virða skal 2ja metra reglu í samskiptum við starfsfólk.
- Fullbólusettir aðstandendur sem dvalið hafa erlendis– eins og áður mega þeir koma í heimsókn að höfðu samráði við stjórnendur deilda og að því tilskyldu að þeir séu með öllu einkennalausir. Við viljum samt biðla til þeirra að fara í skimun eftir að þeir koma til landsins og að niðurstaða liggi fyrir áður en þeir koma í heimsókn.
- Óbólusettir aðstandendur sem eru að koma erlendis frá mega ekki koma í heimsókn inn á heimilin fyrr en 14 dagar eru liðnir frá heimkomu (undanþágu er hægt að fá í samráði við stjórnendur deildar ef um skyndileg veikindi/lífslokameðferð er að ræða hjá íbúa).
Við hvetjum alla til að hafa opið fyrir rakningarapp Almannavarna í símum sínum !
Íbúum er heimilt að fara út af heimilinu en við biðjum um að ekki sé farið í mjög fjölmenna mannfagnaði eða aðra fjölmenna staði/samkomur að svo stöddu.
Gestir mega ekki koma í heimsókn ef þeir:
- Eru í sóttkví.
- Eru í einangrun (einnig meðan beðið er niðurstöðu úr sýnatöku).
- Hafa dvalið erlendis undanfarna daga og eru ekki komnir með neikvæða niðurstöðu úr skimun eftir komuna til landsins.
- Hafa verið í einangrun vegna COVID-19 smits og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift.
- Eru með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang).
Sem fyrr eru undantekningar gerðar, í samráði við starfsfólk, ef um mikil veikindi heimilismanna er að ræða.
Munið að sýna ýtrustu varkárni og virða sóttvarnaráðstafanir í heimsóknum. Við þurfum öll að hafa í huga persónulegar sýkingavarnir s.s. handþvott og handsprittun.
Bólusettir geta líka smitast af Covid og smitað aðra.
Þessar reglur verða endurskoðaðar um leið og forsendur breytast.
Kær kveðja,
Stjórnendur Höfða