Skjótt skipast veður í lofti og eins og allir hafa orðið varir við. Í ljósi allra þessara nýju smita tengt breska afbrigðinu af Covid þá verðum við að herða á heimsóknartakmörkunum. Nýjar takmarkanir gilda a.m.k. næstu þrjár vikur.
Að gefnu tilefni viljum við minna aðstandendur á að halda sig heima finni þeir fyrir minnstu einkennum sem gætu bent til COVID-19 smits og fara í sýnatöku. Að sjálfsögðu skal halda sig heima ef þið eruð í sóttkví eða einangrun.
Heimsóknartakmarkanir eru eftirfarandi og breytingar eru feitletraðar:
- Heimilið verður opið fyrir heimsóknir á milli 13:00-17:00 alla daga vikunnar.
- Einungis tveir gestir mega koma í heimsókn í einu.
- Börnum yngri en 18 ára er ekki heimilt að koma í heimsókn.
- Ekki verður um að ræða tímamörk á heimsóknum innan heimsóknartímans.
- Heimsóknir fara fram í vistarverum íbúa, ekki má staldra við í sameiginlegum rýmum heimilisins.
- Allir gestir þurfa að koma með andlitsgrímu (maska).
- Gestir skulu virða 2 metra regluna gagnvart öðrum íbúum og starfsfólki.
- Íbúum er heimilt að fara í bíltúr og í heimsókn til ættingja. Það eru vinsamleg tilmæli að halda fjölda annarra gesta í slíkri heimsókn í lágmarki.
- Þjónustuþegar í dagdvöl og heimilisfólk má hittast.
- Þjónusta við aðra en íbúa Höfða og þjónustuþega dagdvalar verður ekki heimil í sjúkraþjálfun, hárgreiðslu og fótsnyrtingu.
- Kostgangarar geta komið í hádegismat á Höfða í gegnum aðalinngang.
Sem fyrr er mikilvægt að hafa í huga að gestir mega ekki koma í heimsókn ef þeir:
- eru í sóttkví.
- eru í einangrun (einnig meðan beðið er niðurstöðu úr sýnatöku).
- hafa dvalið erlendis og ekki eru liðnir 14 dagar frá heimkomu.
- hafa verið í einangrun vegna COVID-19 smits og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift
- eru með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl.).
Kærar páskakveðjur til ykkar allra,
Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri
Ólína Ingibjörg Gunnarsdóttir hjúkrunarforstjóri