Nú á ellefta tímanum hófst bólusetning á íbúum Höfða vegna COVID-19
Mánaðarskipt færslusafn fyrir: desember 2020
Heimsóknarreglur Höfða um jól og áramót
Ágætu íbúar og aðstandendur.
Við biðlum til ættingja að leggja eigin hagsmuni til hliðar fyrir hagsmuni heildarinnar.
Jólahátíðin er mikil fjölskylduhátíð og á sérstakan sess í hjörtum flestra. Við á Höfða höfum í gegnum árin litið til jólahátíðarinnar með mikilli gleði og tilhlökkun og fundist mikilvægt að gera allt sem við getum til að aðfangadagskvöld og jóladagarnir verði sem hátíðlegastir fyrir íbúa okkar, aðstandendur og starfsfólk.
Þetta árið er ljóst að jólahátíðin verður ekki með hefðbundnu sniði. Covid hefur haft áhrif á líf okkar allra, regluleg samvera hefur farið úr skorðum og miklar hömlur hafa verið settar á öll samskipti. Á Höfða hafa gilt ákveðnar heimsóknartakmarkanir frá byrjun faraldursins, mismiklar hverju sinni. Ávallt hefur markmiðið verið að verja íbúana okkar og reyna að hindra að smit berist inn á heimilið. Í ljósi aðstæðna og þess að samvera verður ekki á sama hátt og fyrri jólahátíðir munum við leggja okkur enn frekar fram um að gera allt sem í okkar valdi stendur til að jólahátíðin verði sem hátíðlegust og notalegust fyrir íbúa okkar.
Sóttvarnaryfirvöld hafa lagt ríka áherslu á að við „höldum þetta út“ og búum til okkar eigin „jólakúlu/jólavini“ þar sem einstaklingar velji sér þá sem þeim finnst mikilvægast að hafa samskipti við um hátíðarnar. Þetta þurfum við á Höfða einnig að hafa í huga. Því miður verður því ekki hægt að bjóða maka eða öðrum ættingjum að borða með íbúanum á aðfangadagskvöld eða hina jóladagana. Það sama á við um gamlársdag og nýársdag.
Við mælum eindregið gegn því að íbúi fari út af heimilinu til ættingja sinna um hátíðarnar. Ef íbúi fer út af heimilinu þarf hann að fara í sóttkví í 5 daga með ættingja á hans heimili. Þeir aðilar sem eru saman í sóttkví þurfa að fara í sýnatöku í upphafi sóttkvíar og svo aftur að 5 dögum liðnum áður en íbúa er veitt heimild til að koma aftur inn á Höfða.
Athugið að eftirfarandi heimsóknareglur munu alltaf þurfa að taka mið af stöðu faraldursins í samfélaginu og gætu því breyst fram að jólum.
Við sendum ykkur öllum okkar bestu óskir um gleðilega jólahátíð og horfum með bjartsýni til nýs árs með von um fleiri samverustundir á nýju ári.
Við þökkum kærlega fyrir þann skilning og hlýhug sem íbúar og aðstandendur hafa hingað til sýnt í orði og verki.
Með kærri kveðju,
Stjórnendur Höfða
Heimsóknarreglur um jól:
Stjórnendur Höfða hafa ákveðið að rýmka aðeins heimsóknareglurnar um jólahátíðina ef ástand í samfélaginu leyfir.
Mikilvægt er að hafa í huga að njóta samveru, hátíðleika og væntumþykju þótt hátíðarkvöldverður á aðfangadagskvöld sé ekki snæddur saman. Samveran sjálf er svo mikilvæg. Þið getið skapað ykkar eigin hátíðar- og jólastund með ættingja ykkar. Tökum sem dæmi að hægt er að sitja saman inn á herbergi íbúa og opna jólapakka, hlusta á jólatónlist, gæða sér á góðgæti sem ættingjar koma með og njóta hátíðleikans og þess að vera saman:
- Eftir hádegi á aðfangadag verður heimilið opið fyrir heimsóknir milli kl 14:00-17:00.
- Eftir að íbúar og starfsfólk hafa snætt hátíðarkvöldverðinn kl 18 á aðfangadag er heimilið opið fyrir heimsóknir milli kl 19:30-22:00.
- Njótið rafrænna samskipta. Sá sem kemur í heimsókn getur tengst öðrum ættingjum í gegnum netið. Þannig er hægt að skapa hátíðlega samverustund með fleirum en heimsóknargestinum sjálfum.
- Tveir gestir á dag hafa leyfi til að heimsækja hvern íbúa aðfangadag (24. des), jóladag (25. des) og annan í jólum (26. des).
- Rýmri lengd á heimsóknartíma verður þessa 3 daga og verður milli kl. 14:00-17:00 og frá 19:30-22:00
- Börn undir 18 ára hafa leyfi til að koma í heimsókn, en þá teljast þau annar af þessum tveimur gestum.
- Munið að spritta hendur við komu og áður en þið yfirgefið heimilið.
- Allir gestir þurfa að koma með andlitsgrímu (maska). Óheimilt er að koma með taugrímu.
- Vinsamlega hafið grímuna á ykkur allan tímann á meðan heimsókn stendur.
- Vinsamlega farið beint inn á herbergi íbúa, ekki stoppa og spjalla á leiðinni. Ef íbúi er ekki inni á herbergi þá biðjið þið starfsfólk að sækja hann, ekki gera það sjálf.
- Virðið 2ja metra regluna og forðist snertingu við íbúa.
- Heimilt er að fara með íbúa út í göngutúr í nærumhverfi á meðan heimsókn stendur.
- Ekki er heimilt að fara í bíltúr eða heimsókn með heimsóknargesti sínum.
- Undanþága frá þessu er aðeins veitt við mikil veikindi íbúa og þarf leyfi frá vaktstjóra deildar.
Vinsamlega EKKI koma inn á Höfða ef:
- Þú ert í sóttkví eða einangrun.
- Þú bíður eftir niðurstöðu úr sýnatöku.
- Þú ert með flensulík einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl.).
- Þú varst erlendis fyrir minna en 14 dögum.
Panta þarf tíma yfir jólin hjá Sillu húsmóður í síma 856-4303 milli kl. 11 og 12 í vikunni fyrir jól. Skráningu lýkur kl. 12. þann 23.12.2020
Heimsóknarreglur um áramót:
Stjórnendur Höfða hafa ákveðið að rýmka aðeins heimsóknareglurnar um áramótin ef ástand í samfélaginu leyfir.
Mikilvægt er að hafa í huga að njóta samveru, hátíðleika og væntumþykju þótt áramótakvöldverður á gamlárskvöld sé ekki snæddur saman. Samveran sjálf er svo mikilvæg. Þið getið skapað ykkar eigin hátíðar- og áramótastund með ættingja ykkar.
- Eftir hádegi á gamlársdag verður heimilið opið fyrir heimsóknir milli kl 14:00-17:00
- Eftir að íbúar og starfsfólk hafa snætt áramótakvöldverð kl 18 á gamlársdag eru heimilið opið fyrir heimsóknir milli kl 19:30-22:00.
- Njótið rafrænna samskipta. Sá sem kemur í heimsókn getur tengst öðrum ættingjum í gegnum netið. Þannig er hægt að skapa hátíðlega samverustund með fleirum en heimsóknargestinum sjálfum.
- Tveir gestir á dag hafa leyfi til að heimsækja hvern íbúa gamlársdag (31. des) og nýársdag (1. jan)
- Rýmri lengd á heimsóknartíma verður þessa 2 daga og verður milli kl. 14:00-17:00 og frá 19:30-22:00
- Börn undir 18 ára hafa leyfi til að koma í heimsókn, en þá teljast þau annar af þessum tveimur gestum.
- Munið að spritta hendur við komu og áður en þið yfirgefið heimilið.
- Allir gestir þurfa að koma með andlitsgrímu (maska). Óheimilt er að koma með taugrímu.
- Vinsamlega hafið grímuna á ykkur allan tímann á meðan heimsókn stendur.
- Vinsamlega farið beint inn á herbergi íbúa, ekki stoppa og spjalla á leiðinni. Ef íbúi er ekki inni á herbergi þá biðjið þið starfsfólk að sækja hann, ekki gera það sjálf.
- Virðið 2ja metra regluna og forðist snertingu við íbúa.
- Heimilt er að fara með íbúa út í göngutúr í nærumhverfi á meðan heimsókn stendur.
- Ekki er heimilt að fara í bíltúr eða heimsókn með heimsóknargesti sínum.
- Undanþága frá þessu er aðeins veitt við mikil veikindi íbúa og þarf leyfi frá vaktstjóra deildar.
Vinsamlega EKKI koma inn á Höfða ef:
Panta þarf tíma yfir áramótin hjá Sillu húsmóður í síma 856-4303 milli kl. 11 og 12 í vikunni milli jóla og nýárs. Skráningu lýkur kl. 12. þann 30.12.2020.