Fagmennska – Umhyggja – Virðing – Gleði
Höfði - Heimili með hjarta
Við leggjum áherslu á fagmennsku í allri þjónustu, umhyggju í samskiptum og virðingu fyrir einstaklingnum – með gleði og hlýju að leiðarljósi.
Umsókn um dvöl
Það eru 73 hjúkrunarrými á Höfða og 2 hvíldarrými fyrir tímabundina dvöl.
Einstaklingar sem óska eftir hjúkrunarrými eða hvíldarinnlögn þurfa að byrja á að sækja um færni- og heilsumat.

Ertu að flytja inn?
Það er að ýmsu að huga þegar fólk flytur inn á hjúkrunarheimili. Starfsfólk Höfða leggur metnað sinn í að taka vel á móti nýjum íbúum og veita góða aðstoð og upplýsingar.

Fréttir

16. mars 2026
Á hverjum miðvikudegi hittist hópur fólks á Bókasafni Akraness til að fara yfir valdar myndir úr Ljósmyndasafni Akraness o g bera kennsl á það sem fyrir augu ber í þeim tilgangi að bæta skráningar safnsins. Á fimmtudögum fara íbúar og gestir á Dvalarheimilinu Höfða yfir sömu myndir. Ljósmyndafundunum stjórnar Kristinn Jens Kristinsson eða Kiddi Jens. "Það verður að vera gaman," segir Kiddi og það markmið hefur sannarlega tekist því fundirnir eru orðnir hápunktur vikunnar hjá mörgum sem þangað mæta. Í meðfylgjandi myndbandi, sem var tekið upp snemma í vetur, förum við á rúntinn með Kidda Jens og heimsækjum með honum bæði Bókasafnið og Höfða . Sjón er sögu ríkari! Horfa á Myndband