Fagmennska – Umhyggja – Virðing – Gleði

Höfði - Heimili með hjarta

Við leggjum áherslu á fagmennsku í allri þjónustu, umhyggju í samskiptum og virðingu fyrir einstaklingnum – með gleði og hlýju að leiðarljósi.

Umsókn um dvöl

Það eru 73 hjúkrunarrými á Höfða og 2 hvíldarrými fyrir tímabundina dvöl.
Einstaklingar sem óska eftir hjúkrunarrými eða hvíldarinnlögn þurfa að byrja á að sækja um færni- og heilsumat.

Dagdvöl

Á Höfða er dagdvöl fyrir 25 einstaklinga auk heimilisfólks. Opið  alla virka daga frá 9:00-16:00. Einstaklingar geta fengið dagdvöl heilan eða hálfan dag, allt frá einum degi til fimm daga vikunnar.
Boðið er upp á akstur í og úr dagdvöl.

Ertu að flytja inn?

Það er að ýmsu að huga þegar fólk flytur inn á hjúkrunarheimili. Starfsfólk Höfða leggur metnað sinn í að taka vel á móti nýjum íbúum og veita góða aðstoð og upplýsingar.

16. mars 2026
Á hverjum miðvikudegi hittist hópur fólks á Bókasafni Akraness til að fara yfir valdar myndir úr Ljósmyndasafni Akraness o g bera kennsl á það sem fyrir augu ber í þeim tilgangi að bæta skráningar safnsins. Á fimmtudögum fara íbúar og gestir á Dvalarheimilinu Höfða yfir sömu myndir. Ljósmyndafundunum stjórnar Kristinn Jens Kristinsson eða Kiddi Jens. "Það verður að vera gaman," segir Kiddi og það markmið hefur sannarlega tekist því fundirnir eru orðnir hápunktur vikunnar hjá mörgum sem þangað mæta. Í meðfylgjandi myndbandi, sem var tekið upp snemma í vetur, förum við á rúntinn með Kidda Jens og heimsækjum með honum bæði Bókasafnið og Höfða . Sjón er sögu ríkari! Horfa á Myndband
7. mars 2026
Hjúkrunar-og dvalarheimilið Höfði auglýsir laust til umsóknar starf umsjónarmanns fasteigna. Um er að ræða fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf sem snýr að rekstri og viðhaldi fasteigna heimilisins. Sótt er um starfið á alfreð.is . 